157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:01]
Horfa

Ingveldur Anna Sigurðardóttir (S):

Virðulegi forseti. Samgönguáætlun kemur seint til sérumræðu. Til þess að landið byggist upp er gríðarlega mikilvægt að samgöngur séu í lagi. Atvinnulíf og fólksfjölgun á landsbyggðinni velta á því hvort samgöngur séu í lagi. Samgöngur eru hluti af daglegu lífi íbúa í landinu og það er mikilvægt að þær séu í toppstandi. Við eigum margt undir því að samgöngur séu upp á tíu. Atvinnulífið, og þar með útflutningstekjur þessa lands, treystir á að vegir séu í góðu lagi og verðmætin komist frá A til B. Án trausts og skilvirks samgöngukerfis stöðvast hjól samfélagsins nær samstundis.

Suðurkjördæmi er gríðarstórt kjördæmi, spannar mörg hundruð ferkílómetra og þar undir eru mörg hundruð kílómetrar af vegum sem eru ekki í góðu ásigkomulagi. Íbúar Suðurkjördæmis treysta á samgöngur til að komast til og frá vinnu og tómstundum. Foreldrar keyra börn í skóla, leikskóla, á íþróttaæfingar og oft milli sveitarfélaga. Í kjördæminu eru margvíslegir atvinnuvegir sem treysta á góðar samgöngur og þar má t.d. nefna landbúnað, ferðaþjónustu, landeldi, sem er gríðarlega stækkandi atvinnugrein hjá okkur, útflutning á sandi og svo margt fleira. Við erum með hliðið inn í Ísland, Keflavíkurflugvöll. Við erum með margar stórar hafnir í kjördæminu sem liggja meðfram allri strandlengjunni sem og í Vestmannaeyjum. Mörg þúsund ferðamenn keyra á vegum landsins alla daga til að skoða okkar fallega land. Ég get eiginlega fullyrt það að 95% af þeim ferðamönnum sem koma til Íslands leggja leið sína um Suðurkjördæmi og því er gríðarlega mikilvægt að vegirnir séu í lagi. Landbúnaður er stór atvinnugrein. Mjólkin sem þið, hv. þingmenn, hellið á morgunkornið ykkar er að öllum líkindum framleidd í Suðurkjördæmi og oft ferðast sú mjólk mörg hundruð kílómetra til að komast á diskana ykkar. Mjólkurbílarnir keyra kjördæmið þvert og endilangt til að sækja mjólkina til bóndans. Oftar en ekki eru þetta slitnir malarvegir sem langafi minn lagði líklegast. Er það forsvaranlegt? Nei.

Mig langar til að byrja þessa yfirferð mína á því að velta upp ákveðnu verkefni til þess að hraða uppbyggingu stofn- og tengivega. Í sveitarstjórnarkosningunum heyrði ég hávært ákall um að bæta stofn- og tengivegi þar sem margir vegir eru að liðast í sundur og fólk fær garnaflækjur við að keyra þessa vegi. Bara í Rangárþingi eystra eru t.d. margir kílómetrar af vegum sem þarf að lagfæra. Sveitarstjóri Rangárþings eystra hefur velt upp þeirri hugmynd að sveitarfélög gætu sótt um fjármagn til ríkisins sem sveitarfélagið geti ráðstafað og forgangsraðað til uppbyggingar vega. Það er nefnilega þannig að nærsamfélagið veit oftast betur hvaða vegspottar þarfnast viðhalds og endurbóta. Ég er samt ekki að segja að sveitarfélögin eigi að taka þessa vegi til sín úr hendi ríkisins heldur er ég einfaldlega að koma með lausn sem gæti hraðað uppbyggingu verkefnisins af því að ákallið er slíkt.

Einnig verður að segja að það er oft flókið og dýrt að byggja einn metra af vegi og til að geta hraðað uppbyggingu á vegum verðum við einfaldlega að endurskoða það hvaða kröfur við gerum til vega, t.d. til þjóðvegarins, stofn- og tengivega. Við eigum ekki að slá af öryggiskröfum heldur einfaldlega búa þannig um hnútana að við getum byggt upp vegi án þess að metrinn kosti í raun svona svakalega mikið.

Ég ætla að byrja á Reykjanesinu. Búið er að seinka tvöföldun Reykjanesbrautar um of í allt of mörg ár. Þarna fara um allir þeir sem koma frá Keflavíkurflugvelli sem er gríðarlegur fjöldi. Samkvæmt þessari samgönguáætlun er tvöföldun brautarinnar tímasett eftir árið 2030. Tvöföldun á kaflanum milli Hafnarvegs og Garðskagavegs hefur verið ýtt aftur á annað tímabil áætlunarinnar. Suðurnesjabær viðraði þær áhyggjur sínar í umsögn sinni að þetta væri allt of seint sökum umferðarþunga, sem er eðlilegt. Það er ekkert leyndarmál að íbúafjölgun á Reykjanesi er búin að vera gífurleg og innviðir samfélagsins verða að endurspegla það.

Samgöngur til Vestmannaeyja hafa verið í skötulíki þennan veturinn. Landeyjahöfn fylltist af sandi og enginn réð við að dæla upp úr höfninni. Ljóst er að það þarf að grípa til aðgerða og koma höfninni í stand. Sá kostnaður sem rennur til Landeyjahafnar samkvæmt samgönguáætlun er til að standa undir kostnaði við rannsóknir, öryggismál, viðhaldsframkvæmdir og landgræðslu. Í lok tímabilsins er svo gert ráð fyrir að malbika bílastæðin og endurbyggja garðsenda brimvarnargarðanna. Niðurstöður dönsku verkfræðistofunnar DHI munu liggja fyrir von bráðar en þær aðgerðir sem munu verða lagðar til samkvæmt þeirri skýrslu eru ekki fjármagnaðar. Verða þær fjármagnaðar í gegnum fjárlög eða innviðafélag? Það veit enginn. Þeim spurningum er algerlega ósvarað í þessari þingsályktunartillögu.

Herjólfur er skilgreindur sem hluti af almenningssamgöngum sem er fjarstæðukennt. Þetta er eina tenging Eyjamanna meiri hlutann úr árinu við meginlandið. Þetta er lífæð samfélagsins. Samgönguáætlun endurspeglar ekki nauðsyn þess að grípa til aðgerða hvað varðar samgöngur milli lands og Eyja. Núna er næstum því búið að tvöfalda veginn frá Reykjavík að Selfossi en það er ekki gert ráð fyrir neinni áframhaldandi tvöföldun á þjóðveginum áfram austur. Umferðarþunginn um þennan veg hefur aukist gríðarlega síðasta áratuginn. Þegar ég var lítil þá þekkti maður flesta bílana sem keyrðu á milli bæja, undir Eyjafjöllum a.m.k., en í dag er þjóðvegurinn fyrir neðan heimili mitt, Varmahlíð undir Eyjafjöllum, einn fjölfarnasti vegur á landinu. Umferðarþunginn er gríðarlegur og mun halda áfram að aukast. En stendur til að setja þessa tvöföldun í forgang? Nei, heldur betur ekki. Þetta er verkefni sem mun greinilega ekki ná austur fyrir Selfoss. Slysin verða fleiri og alvarlegri og ekkert er gert.

Þrengslavegur er orðinn mikilvæg samgönguleið sem þarf að byggja upp. Það hefur verið mikil uppbygging í Sveitarfélaginu Ölfusi á íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði og mikil atvinnuuppbygging og fólki hefur fjölgað samhliða því að iðnaður á svæðinu hefur orðið meiri. Ég leyfi mér að vitna hérna í umsögn Sveitarfélagsins Ölfuss, með leyfi forseta:

„Þegar þessir tveir þættir, íbúafjölgun annars vegar og vaxandi þungaflutningar hins vegar, leggjast saman, skapast umferðarmynstur sem vegakerfið er ekki hannað fyrir í núverandi mynd. Vegir með takmarkað burðarþol, skerta breidd og lægra þjónustustig vetrarþjónustu þurfa þá að bera bæði stöðuga daglega umferð fólksbíla og aukinn fjölda stórra flutningabíla. Slíkt eykur líkur á umferðartöfum, slysum og skertri þjónustu, auk þess sem það hefur neikvæð áhrif á ferðatíma, rekstrarkostnað og lífsgæði íbúa.“

Þessi efnisgrein dregur saman mjög ágætlega stöðu kjördæmisins. Umsvif atvinnulífsins samhliða fólksfjölgun aukast alls staðar í kjördæminu. Þorlákshöfn er þéttbýliskjarni sem er mjög gott dæmi um þetta. Kakan stækkar og margs konar atvinnuvegir bætast við í flóruna, sem er mjög jákvætt, en innviðauppbygging af hendi ríkisins fylgir ekki þrátt fyrir að skattar og gjöld hafi hækkað í nafni þess að það eigi að fara í uppbyggingu vega. Uppbygging um Þrengslaveg getur ekki beðið mikið lengur. Reynisfjall er mikill umferðartálmi og bílar keyra út af á veturna í gríð og erg. Vegbótum um Reynisfjall er frestað til annars tímabils sem er ekki gott. Göng eru ekki á dagskrá og þetta svæði þolir ekki bið. Það er greinilega ekkert plan og engin framtíðarsýn.

Svo langar mig til að nefna einbreiðar brýr í kjördæminu sem eru mikið vandamál og þá helst brúna yfir Jökulsárlón sem er gríðarlega hættuleg og maður sér varla bíl mæta manni hinum megin við endann á brúnni. Þarna fara flestir ferðamenn, vil ég segja, sem koma hingað til lands og þetta skapar gríðarlega hættu á þessu svæði. Þetta er ekki á dagskrá.

Innviðafélag og samgönguáætlun hanga saman og það er mjög mikið af framkvæmdum sem veltur á „ef“ eða „kannski“, sem er ekki gott. Ég væri til í að sjá meiri framtíðarsýn í samgöngumálum hér á Íslandi. — Ég hef lokið máli mínu, forseti.