157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:12]
Horfa

Ingveldur Anna Sigurðardóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög gott. Ég bý undir Eyjafjöllum og horfi til Vestmannaeyja á hverjum einasta degi og við byggjum öll okkar hús þannig að við horfum til Eyja og sjáum skipið ganga á milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja. Það þarf auðvitað til langs tíma litið hvað varðar samgöngur milli lands og Eyja að vera með almennilegt varaskip. Herjólfur III er í Sundahöfn, skilst mér, ógangfær; það verður að koma honum á sjó. Það væri ákveðin lausn en svo þarf auðvitað að smíða nýtt skip sem er hannað fyrir Landeyjahöfn og kemst á milli lands og Eyja og er þá til vara. Á sumrin til að mynda væri hægt að nýta það til að fjölga ferðum, ég kasta því bara fram að annað skipið væri t.d. notað undir vöruflutninga. Svo þarf auðvitað að tryggja fjármagn. Það sem einkennir þessa samgönguáætlun er að það er af skornum skammti til Eyjamanna, sem er sorglegt af því að samgöngur síðasta vetur — það er byrjað að nýta höfnina eins og á að nýta hana bara núna á síðustu vikum og dögum nánast. Það gengur erfiðlega að dýpka. Það er von á nýjum aðilum núna í haust, sem er jákvætt. Ég er spennt að sjá hvernig það verkefni mun ganga.

Ég er mjög bjartsýn, kannski er ég bara bjartsýn að eðlisfari en ég er mjög bjartsýn hvað varðar göng til Eyja og ég held að ég muni keyra þau áður en ég dey. Ég mun kannski sækja sjúkraþjálfun til Vestmannaeyja eða læknisþjónustu o.s.frv., það væru mikil samlegðaráhrif þarna fyrir þessi samfélög. Vestmannaeyingar eiga betra skilið og ég mun keyra þessi göng áður en ég dey.