samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir sitt andsvar. Við skulum öll vona að þér endist aldur til að keyra milli lands og Eyja í jarðgöngum, neðansjávargöngum, þér verður vonandi að þinni ósk. En það sem snýr að samgöngum enn frekar og varðar varaskip og dýpkun í Landeyjahöfn — það er náttúrlega þetta sérstaka ástand uppi þess efnis að það er verið að taka ferju frá Breiðafirði til að þjónusta Eyjar og á meðan er í sjálfu sér þessi þjónusta ekki til staðar við Breiðafjörð og fyrir Vestfirði alla. Grunnurinn að því sem ég ætla að reyna að leggja hér upp í seinna andsvari snýr fyrst og fremst að því að við þurfum sömuleiðis, til þess að Landeyjahöfn sé opin lengur, (Forseti hringir.) að gera samninga til lengri tíma sem snúa að dýpkun Landeyjahafnar.