157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:16]
Horfa

Ingveldur Anna Sigurðardóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Já, það er verið að taka Baldur úr þjónustu við Breiðafjörð og það er grátlegt að horfa upp á það af því að þjónustan við Breiðafjörð verður engin og fólk kemst ekki til Flateyjar o.s.frv. Þess vegna er gríðarlega mikilvægt að fá þetta varaskip til að geta stigið inn í þetta ástand og það verður gaman að sjá hvort ríkisstjórnin muni sjá hag sinn í því á næsta þingi. Belgarnir sem eru á leiðinni í haust eru með öflugri búnað, hefur maður heyrt, þannig að ég ber alla vega miklar vonir til þeirra, þær ættu kannski að vera hóflegar eins og ástandið var núna í vetur. En maður verður alltaf að vera bjartsýnn.