samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ingveldi Önnu Sigurðardóttur fyrir hennar erindi og tek undir óskir hv. þm. Þórarins Inga Péturssonar um hamingjuóskir með að vera kominn hér til þings. Hv. þingmaður fór ágætan hring í sínu kjördæmi í upptalningu á þeim verkefnum sem hún taldi kannski einna brýnust. Þar á meðal nefndi hv. þingmaður réttilega mikinn uppgang sem hefur verið núna um alllangt skeið og ekki sér fyrir endann á í Þorlákshöfn. Þar hafa náttúrlega verið, eins og þjóðin þekkir, miklir uppgangstímar og kraftur í samfélaginu. En það kallar auðvitað á styrka innviði. Maður getur rétt ímyndað sér, miðað við uppbygginguna sem þarf að eiga sér stað, aukninguna á þungaflutningum tilheyrandi þeirri starfsemi. Þá er ég ekki bara að vísa til afurða eða fóðurs heldur er bara svo fjölmargt sem fyrirtæki af þessari stærðargráðu þurfa til sín. Ég setti þetta í samhengi við annað sem hv. þingmaður gerði að umtalsefni í sínu erindi og varðaði þungatakmarkanir. Nú er ég ekki mjög kunnugur á þessum slóðum en er hv. þingmanni kunnugt um hvort þessar þungatakmarkanir, sem hv. þingmaður vék að í máli sínu, hafi áhrif á til að mynda frekari uppbyggingu atvinnulífsins í Þorlákshöfn?