samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir gott andsvar. Í Þorlákshöfn hefur verið gríðarlegur uppgangur og þar eru líka aðstæður fyrir ýmiss konar fjölbreyttan iðnað, hvort sem er til að vinna lit úr þörungum eða fyrir landeldi. Aðstæður þar eru mjög góðar fyrir margt. Þar er auðvitað höfn líka þannig að það eru ekki bara þungaflutningar frá Þorlákshöfn heldur líka til Þorlákshafnar. Mér er ekki kunnugt um þungatakmarkanir á vegum en ég get alveg ímyndað mér að það sé stutt í það. Það má ekki gleyma því að Þrengslavegur þjónustar auðvitað líka íbúa svæðisins eins og atvinnulífið. Fólk fer þarna um og sækir vinnu til Reykjavíkur o.s.frv. og þungaflutningar fara þarna um. Þannig að það er mjög mikilvægt að þessi vegur sé settur í meiri forgang til þess að það skapist aðstæður fyrir enn frekari aukningu í Þorlákshöfn í Ölfusi og í nærsamfélaginu þar.
Svo má ekki gleyma Suðurstrandarvegi. Hann gæti þjónað sem eins konar tengivegur, t.d. við Reykjanes, til að koma vörum til og frá, af því að maður hefur heyrt um að fyrirtækið sé að hugsa um það einnig. Það er því mjög mikilvægt að þessi vegur komist í frekari forgang. Íbúar á svæðinu hafa kallað á þetta síðan 2021, a.m.k. síðan ég byrjaði að taka þátt í landspólitíkinni, þannig að: Já, það er kominn tími til.