157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:21]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. — Herra forseti. Voru ekki þrír í andsvörum? Ég sé að herra forseti ætlar að vera rausnarlegur við mig hér seinna og kann ég honum bestu þakkir fyrir það (Forseti (IngÞ): Ekki lengur.) — en hef nú fengið refsingu fyrir heiðarleikann.

Annað sem bar á góma í erindi hv. þingmanns, sem ég svo sem þekki ekki vel til og myndi gjarnan vilja fá örlítið gleggri yfirsýn yfir, og af því að ég notaði orðið yfirsýn þá nefndi hv. þingmaður einmitt að þegar komið væri að brúnni við Jökulsárlón þá væri vegsýn eða yfirsýn mjög léleg. Ég skil þá hv. þingmann þannig að sá sem kemur að brúnni ýmist austanmegin eða vestanmegin, að það sé erfitt að sjá ökutæki sem kemur úr gagnstæðri átt. Ef ég er að skilja það rétt hjá (Forseti hringir.) hv. þingmanni þá er spurningin: Hvað er það sem þarf að gera þar til að auka þá vegsýn? Erum við að tala um blindhæð eða eitthvað slíkt?