157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:23]
Horfa

Ingveldur Anna Sigurðardóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Já, hv. þingmaður. Brúin yfir Jökulsárlón er til skammar. Það er a.m.k. mín reynsla af því að brúin er kúpt og þegar maður mjakar sér að henni þá þarf maður svona að píra augun á það sem er hinum megin við brúna til að passa að það sé alveg örugglega enginn að koma á móti manni. Ég er kannski bara á litlum Yaris og þarf að kaupa mér stóran Ford til að sjá þetta. En ég get ekki ímyndað mér hvernig það er eins og fyrir ferðamenn, sem eru hér sem eru óvanari, að keyra þessa vegi. Ég hef nú keyrt þetta síðan ég var krakki, hef verið í bíl og ekið þarna um. Brýr eru ekki svona kúptar í dag þegar þær eru byggðar, heldur eru þær sléttar. Það væri gott að fá þarna tvíbreiða, flotta brú sem sómi er að yfir þetta fallega lón. Það myndi auka umferðaröryggi til muna.