157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:24]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ingveldi Önnu Sigurðardóttur kærlega fyrir hennar ræðu og býð hana velkomna til starfa sem þingmann. Hún fjallaði mest um nærsvæði sitt, Suðurland, í erindi sínu. Í minni spurningu þá ætla ég að halda mig við það svæði, svona alla vega í fyrra andsvari, og vera á slóðum Vestmannaeyja. Hún fjallaði svolítið um það í sínu innleggi. Eins og þingmaðurinn þekkir sjálfsagt betur en ég, þá hafa samgöngur til og frá Vestmannaeyjum raskast verulega vegna bilunar í Herjólfi og krefjandi stöðu í Landeyjahöfn. Núverandi staða annar ekki samgönguþörf til og frá Eyjum og hefur Breiðafjarðarferjan Baldur oft verið kölluð til sem varaskip, sem sýnir eðlilega að vandinn nær út fyrir Vestmannaeyjar og varðar ferjusamgöngur á landsvísu. Eins og ég sé þetta þá er þetta ástand fullkomlega ósjálfbært og skapar gríðarlega óvissu fyrir samfélagið í Vestmannaeyjum í heild og raunar núna fyrir stærra svæði vegna þess að nýverið var Breiðafjarðarferjan tekin úr þjónustu á Breiðafirði og færð til Vestmannaeyja til að anna þörfinni þar en ekki út af því að skipið var bilað.

Mig langar að spyrja þingmanninn: Telur hún ekki tímabært að skilgreina samgöngur til Vestmannaeyja sem þjóðveg með hliðsjón af stærð samfélagsins og þjóðhagslegu mikilvægi atvinnulífsins þar? Telur hún ekki líka eðlilegt (Forseti hringir.) að það yrði gerð svona heildstæð ferjuáætlun? Ekki bara fyrir Vestmannaeyjar heldur fyrir landið þar sem ferjuþjónustu er þörf.