157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:29]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ingveldi Önnu Sigurðardóttur fyrir svörin. Ég gleymdi líka að minnast á það að Herjólfur siglir núna á annarri skrúfunni og það er auðvitað ekki gott. Ég tek undir það að auðvitað væri betra að varaskip væri staðsett í Eyjum en ekki að það sé verið að taka það einhvers staðar annars staðar frá.

Í mínu seinna andsvari langaði mig að spyrja þingmanninn aðeins út í göng í gegnum Reynisfjall. Ég held að hún hafi minnst á það aðeins í erindi sínu. Ég minnist þess ekki að göng í gegnum Reynisfjall séu á forgangslista sem birtist með samgönguáætlun í þessari jarðgangaáætlun sem er náttúrlega fullkomlega ófjármögnuð. Ráðherrann er reyndar hættur, held ég, að halda því fram að þetta sé — nei, hann er ekki hættur að halda því fram að þetta sé fullfjármagnað. (Forseti hringir.) Mig langaði að gefa þingmanninum kost á því að segja mér aðeins betur frá óskastöðunni varðandi jarðgöng í gegnum Reynisfjall.