samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Reynisfjall, já, hv. þm. Ingibjörg Davíðsdóttir, það er mikill samgöngutálmi. Ég bjó í sjö ár í Vík og skólabílar keyrðu út af og ég veit ekki hvað. Það þarf að fara í frekari könnun og setja göng á dagskrá. Það þarf að gera þetta í mikilli sátt við samfélagið um hvernig vegurinn muni liggja í gegnum þorpið o.s.frv. En jú, það þarf að setja þetta á forgangslista samgönguáætlunar og jarðgangaáætlunar, sem sagt þann hluta samgönguáætlunar. Reynisfjall er svakalega hættulegur vegur. Vegurinn upp Reynisfjall er ekki — á veturna rennur maður niður ef maður kemst ekki nógu hratt upp í mikilli hálku. Absalút, ég væri til í að sjá þetta á samgönguáætlun.