157. löggjafarþing — 122. fundur,  10. júní 2026.

Almennar stjórnmálaumræður.

[19:43]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Kæru landsmenn. Í nýliðnum sveitarstjórnarkosningum sendi þjóðin skýr skilaboð. Fólk vill að stjórnmálin snúist aftur um það sem skiptir máli í daglegu lífi: fjölskylduna, skólana, húsnæði, samgöngur, öryggi og ráðdeild í rekstri. Fólk vill að stjórnvöld virði skattfé almennings og skili lausnum sem virka.

Þessi skilaboð heyrðust skýrt í Reykjavík en einnig víða um land. Þau sýna að sjálfstæðisstefnan á brýnt erindi við fólkið í landinu. Stefna okkar Sjálfstæðismanna byggir á því að treysta fólki, virða framtak og sjálfsaflafé fólksins í landinu og skapa svigrúm fyrir fjölskyldur, fyrirtæki og ungt fólk sem vill byggja upp líf sitt hér á landi. Og sjálfstæðisstefnan byggir á því að ákvarðanir um Ísland verði teknar á Íslandi.

Virðulegi forseti. Á sama tíma og þjóðin kallar eftir stjórnmálum í tengslum við fólkið í landinu hrannast vandamálin upp í ríkisrekstrinum. Í stað þess að stemma stigu við vexti ríkisútgjalda og stuðla að jafnvægi velur ríkisstjórnin að verja dýrmætum tíma og fjármunum í verkefni sem svara ekki þeim brýna vanda sem heimili og fyrirtæki standa nú frammi fyrir. Við vitum hvað þarf að gera til að ná niður vöxtum og verðbólgu. Það hefur ekkert með krónuna að gera og evran leysir ekki þann vanda. Hún er engin töfralausn. Ríkisstjórnin verður að draga úr útgjöldum, hætta að velta kostnaði yfir á heimili og fyrirtæki, einfalda regluverk og treysta atvinnulífinu. Þetta eru ekki fyrirsagnaverkefni heldur dagleg störf ábyrgra stjórnmála.

Þegar ríkisstjórnin stendur frammi fyrir vanda þá skipar hún starfshóp. Þegar hún þarf að taka afstöðu þá pantar hún skýrslu. Á meðan er athyglinni beint að Evrópusambandinu og evrunni eins og það sé einfaldari leið en að taka erfiðar ákvarðanir í ríkisrekstrinum. Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið. Við þekkjum afraksturinn. Fyrir rúmu ári kynnti ríkisstjórnin 57 hagræðingartillögur sem áttu að skila tugum milljarða í sparnað. Nú liggur fyrir að aðeins fimm þeirra hafa komið til framkvæmda. Það er auðvelt að kynna hagræðingu á blaðamannafundi, erfiðara er að hrinda henni í framkvæmd.

Evruskýrslan er annað dæmi um þetta verklag. Hún var kynnt eins og þar væri komin fræðileg staðfesting á yfirburðum evrunnar en annað kom í ljós. Skýrslan svarar ekki því hvort Íslandi sé betur borgið með krónu eða evru. Þetta er alvarlegt þegar þjóðin á að taka afstöðu til jafn stórs máls. Svona byggjum við ekki traust. Stöðugleiki næst með ábyrgð, aga og trúverðugri hagstjórn.

Þess vegna skiptir sjálfstæðisstefnan máli. Hún segir að ríkið eigi ekki fyrst að spyrja hvernig hægt sé að ná meiri fjármunum af fólki heldur hvernig hægt sé að fara betur með þá fjármuni sem fólk hefur þegar greitt til ríkisins. Sjálfstæðisstefnan segir að atvinnulífið sé ekki vandamál sem stjórnmálamenn þurfi að regluvæða heldur forsenda verðmætasköpunar og betri lífskjara.

Virðulegi forseti. Í Reykjavík hafði vinstri meiri hlutinn, undir stjórn Samfylkingarinnar, misst sjónar á kjarnahlutverki sveitarstjórna. Á meðan íbúar glímdu við leikskólavanda, myglu í skólum, húsnæðisvanda, umferðarhnúta og auknar álögur beindist athyglin of oft að málum víðs fjarri daglegum áhyggjum borgarbúa. Kjósendur sögðu einfaldlega: Hingað og ekki lengra.

Nýr meiri hluti undir forystu Sjálfstæðisflokksins markaði strax aðra stefnu. Með því að draga þjóðfánann að húni við Ráðhús Reykjavíkur og lýsa því yfir að borgin þyrfti ekki eigin utanríkisstefnu voru send einföld og skýr skilaboð: Borgarstjórn á að sinna grunnþjónustunni betur, leikskólum, grunnskólum, skipulagsmálum og samgöngum.

Þessi skilaboð eiga ekki aðeins við um kjörna fulltrúa í sveitarstjórnum landsins. Þau ná einnig til okkar hér á Alþingi og ekki síst til ráðherra ríkisstjórnarinnar.

Virðulegi forseti. Þjóðin verður brátt beðin um að taka afstöðu til þess hvort hefja eigi að nýju aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Þjóðin á rétt á skýrum upplýsingum áður en hún er beðin um að taka afstöðu til jafn afdrifaríks máls. Forystufólk ríkisstjórnarinnar getur ekki sagt að þjóðin eigi að ráða en forðast um leið að upplýsa um hvað hún á að taka ákvörðun. Spurningin er í raun einföld: Hver á að fara með lokaákvörðunarvaldið í málefnum Íslands? Ekki hvort við eigum að eiga samskipti við aðrar þjóðir heldur hver tekur ákvarðanir fyrir Ísland.

Ísland er og verður virkur þátttakandi í alþjóðlegu samstarfi en samstarf er ekki það sama og sambandsaðild. Fullveldið gerir okkur kleift að ráða auðlindum okkar, móta eigin stefnu, gera eigin samninga og bregðast hratt við þegar aðstæður breytast. Við eigum ekki að færa okkur úr bílstjórasætinu í aftursætið þegar kemur að framtíð Íslands. Við vitum að Evrópusambandið er ekki fríverslunarsamningur. Aðild felur í sér sameiginlega ákvarðanatöku á sviðum sem Íslendingar fara einir með í dag. Sjávarútvegur, tollamál og viðskiptastefna standa utan við EES-samninginn en myndu falla undir sameiginlegt regluverk Evrópusambandsins við aðild.

Enginn getur haldið því fram að ekki sé vitað hvað sé í pakkanum. Óvissan snýst um hvað ríkisstjórnin hyggst gefa eftir og hvað hún telur sig fá í staðinn. Ríkisstjórnin fékk ekki umboð til að láta þetta mál skyggja á efnahagsvandann, grunnþjónustuna og daglegar áskoranir fólks.

Afstaða Sjálfstæðisflokksins er skýr. Við viljum vinna með Evrópu. En við viljum ekki að lokaákvarðanir um fiskimiðin, landbúnaðinn, tollamál, viðskiptastefnu og framtíð íslensks atvinnulífs færist frá Íslandi.

Segjum nei í atkvæðagreiðslunni 29. ágúst næstkomandi.

Virðulegi forseti. Framtíð Íslands verður ekki tryggð með ótta. Hún verður ekki tryggð með því að segja þjóðinni að hún sé of lítil til að standa á eigin fótum. Við Sjálfstæðismenn höfum áður leitt þjóðina í gegnum erfiða tíma. Við höfum byggt upp atvinnulíf, sveitarfélög, innviði og tækifæri. Við höfum sýnt að þegar fólk fær svigrúm til að skapa, vinna og bera ábyrgð þá verður samfélagið okkar sterkara. Nú er kominn tími til að gera það aftur, að lækka álögur, að ná tökum á útgjöldum, að treysta atvinnulífinu, að styrkja heimilin, að standa vörð um fullveldi Íslands.

Við vinnum með Evrópu en ákvarðanir um Ísland verða áfram teknar á Íslandi. Við höfum trú á Íslandi, við höfum trú á fólkinu í landinu og við höfum trú á framtíðinni.

Kæru landsmenn. Gleðilegt sumar.