157. löggjafarþing — 122. fundur,  10. júní 2026.

Almennar stjórnmálaumræður.

[19:58]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Góðir Íslendingar. Það er ánægjulegt að fá að koma hingað inn í þennan hróshring og ég vil byrja þetta á síðbúnu hrósi til hæstv. forsætisráðherra fyrir kröftuga ræðu í þessum sal fyrir sléttum tveimur árum þar sem hún lýsti vel óstjórn og ábyrgðarleysi þáverandi ríkisstjórnar og hét því að tryggja aftur efnahagslegan stöðugleika fyrir fólkið í landinu með ábyrgum ríkisfjármálum.

Hér stöndum við nú og okkur er öllum ljóst að þær væntingar sem vöknuðu með hluta þjóðarinnar þá um nýtt upphaf í íslenskum stjórnmálum hafa því miður brostið. Það er ekki lengur hægt að þræta fyrir stórversnandi efnahagsástand eða snúa sér út úr raunveruleika almennings í landinu með spuna almannatengla. Að baki eru ítrekuð alvarleg mistök í hagstjórn landsins sem var varað við úr öllum áttum, sögulegt met í ríkisútgjöldum, sóun sem knýr áfram verðbólguna og, til að fjármagna neysluveislu ríkisvaldsins, stórauknar álögur og skattahækkanir. Hagvöxtur minni, atvinnuleysi eykst. Verðbólgan haggast varla í bland við samdrátt sem skollinn er á ýmsum sviðum og ekki aðeins er vaxtalækkunarferlinu löngu lokið heldur er vaxtahækkunarferlið hafið. Hallalaus fjárlög áttu að vera haldreipi einhvers staðar hérna í framtíðinni en manni heyrist að líka sé búið að gefast upp á því.

Nei, það er ekki lengur hægt að þræta fyrir ástandið og maður óttast að það geti enginn fjöldi glaðlegra „selfía“ á Facebook-síðu forsætisráðherrans breitt yfir þá staðreynd að kjör íslensks almennings hafa versnað undir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur.

Hvað er þá til bragðs að taka? Jú, við breytum um plan. Í stað þess að fara í Evrópuleiðangurinn þegar búið er að ná tökum á efnahagsmálum líkt og boðað var þá er farið í Evrópuleiðangurinn í stað þess að ná tökum á efnahagsmálum.

Virðulegur forseti. Hér tók við ríkisstjórn tæknikrata sem fannst æsispennandi tilhugsun að fá að reka íslenskt samfélag eins og excel-skjal. En þessi ríkisstjórn hefur ekki einu sinni reynst fær um að láta þá þó fátæklegu hugsjón rætast. Hæstv. fjármálaráðherra ræðir fjálglega um það í viðtölum þessa dagana að samkvæmt excel-skjalinu eigi ekki að vera neitt vandamál að atvinnuleysi rjúki hér upp enn frekar með inngöngu í Evrópusambandið af því að þá færi fólk sig bara til og frá landinu, þ.e. mannfólk sem gengur í excel-skjalinu undir nafninu hreyfanlegt vinnuafl. Ef þetta stæðist gæti maður a.m.k. vonast eftir einhverju lágmarksjafnvægi í innflytjendamálum og í innflytjendastraumnum til landsins og þá gæti maður fagnað því. En gengur kenning ráðherrans upp? Ekki í raunheimum því að á meðan atvinnuleysi fór ört vaxandi á Íslandi í fyrra streymdu hingað innflytjendur í þúsundatali, meira en sem nemur árlegum meðalfjölda á þessari öld. Á sama tíma heldur Íslendingum á Íslandi áfram að fækka, nettóbrottflutningur.

Það er kannski fyrsta skrefið út úr ógöngunum að baunateljararnir fari að horfast í augu við að íslenskt samfélag er ekki excel-skjal. Ísland er ekki bara eitthvert evrópskt efnahagssvæði eins og hvað annað. Íslendingar eru ekki útskiptanlegar einingar. Við erum þjóð. Og þegar forsætisráðherrann þóttist ætla að stuðla að því hér um árið að svo yrði áfram, að við værum þjóð, eins og hæstv. ráðherra Jóhann Páll Jóhannsson vísar til, með nýrri atvinnustefnu og sjálfbærari innflytjendastefnu, þá var hæstv. atvinnuvegaráðherra Viðreisnar, sem á að vera ábyrgðarmaður stefnunnar, metfljótur hér upp í pontu til að útskýra að þessi stefna hefði ekkert með innflytjendamál að gera, að í þeim málaflokki ætti sko alls ekki að breyta um stefnu. Eins og það væri ekki nógu slæmt þá fór þessi sami hæstv. ráðherra, atvinnuvegaráðherra, og bætti um betur í sömu ræðu og fór í athyglisverða orðaleiki um það hvort nokkur munur væri yfirleitt á svonefndum, eins og hún kallaði það, nýbúum frá Noregi á landnámsöld og svo nýbúum nútímans, þ.e. er einhver munur á landnema og innflytjanda? Það er hægt að fara lengra með það: Er einhver munur á Íslendingi og útlendingi eða jafnvel er eitthvað til sem heitir Íslendingur? Er eitthvað til sem heitir Íslendingar?

Það er nefnilega ekkert fast í hendi lengur. Það er alltaf afstætt í innfluttum furðuheimi þessarar alþjóðlegu frjálslyndiselítu sem þessi sami hæstv. ráðherra er ágætur fulltrúi fyrir. Það er allt skilgreiningaratriði. Kyn mannsins, þau eru ekki lengur tvö en þú mátt ekki vita hvað þau eru mörg. Það er heldur ekki punkturinn. Punkturinn er að þú átt að hafa þig hægan og hlýða og ef þú samþykkir ekki þegjandi nýja síbreytilega fantasíuheiminn þá máttu vita að það verða afleiðingar. Þau munu kalla þig öllum illum nöfnum og eitt er ljóst; að þín óhlýðni verður notuð sem viðvörun fyrir aðra.

En til þess að gæta sanngirni er auðvitað rétt að geta þess að það er ákveðin bót í máli fyrir þessa ráðherra Viðreisnar að þetta gerræði, þessar kerfisbundnu aðfarir að frjálsri hugsun venjulegra Íslendinga, þessir alræðistilburðir, eru sem betur fer allur í nafni frjálslyndis og mannréttinda þannig að við getum andað rólega.

Virðulegur forseti. Skal annars einhvern undra að ríkisstjórn sem er á báðum áttum með það hvort þetta gamaldags orð, Íslendingar, sé nothæft hugtak, slái nýtt met í veitingu íslensks ríkisborgararéttar til útlendinga, tæplega 1.100 manns á einu ári, 2025? Nei. Eftir á að hyggja hefði maður kannski bara átt að trúa hæstv. dómsmálaráðherra þegar hún lýsti því hér í vetur að allt heila markmiðið í málaflokknum útlendingamálum væri að fólk upplifði að stjórnvöld hefðu stjórn á málaflokknum. Ekki að stjórnvöld næðu stjórn á málaflokknum heldur að fólk upplifði að svo væri. Þetta metnaðarlausa markmið hefur heldur ekki náðst því að þetta er ekki upplifun fólks, öllu heldur fer vaxandi ónotatilfinning á meðal almennings um að sjálf þjóðmenning okkar til þúsund ára hafi mögulega aldrei verið í eins brothættri stöðu. Þá tel ég, virðulegur forseti, að Íslendingar eigi skilið að stjórnvöld taki málið alvarlega og segi: Við ætlum að verja þetta samfélag. Við ætlum ekki að gefast upp á íslensku leiðinni, stoltri, samheldinni, framsýnni þjóð sem stendur saman, tekst á við erfiðleika, jafnvel á sögulegum skala, en gefst ekki bara upp, hnípin þjóð í vanda, og útvistar umsjón með excel-skjalinu til skriffinna í Brussel? Nei, við verðum að halda vöku okkar.

Hér í vetur var fjallað um áhyggjur af dvínandi bóklestri ungmenna, eddukvæðum, Njálu og Halldóri Laxness. Þetta er okkar þjóðarstolt. Skiljanlega hefur fólk brugðist illa við svona tíðindum sem verið hafa í fjölmiðlum, rétt eins og sjálfur hæstv. forsætisráðherra gerði í viðtali við Vísi hérna um árið þar sem hún upplýsti um að Íslandsklukkan væri eftirlætisverk hennar eftir þjóðskáldið, Jón Hreggviðsson væri frábær karakter, eins og það var orðað. Ég tek undir það og ég ætla að mæla með því hér í lokin að hæstv. forsætisráðherra nýti dauða tímann í sumar, í felum frá Evrópusambandsumræðunni, til að lesa aftur Íslandsklukkuna og rifja upp mikilvæga kafla. Í einum þeirra bíður téður Jón Hreggviðsson réttlætisins á Þingvöllum og á þeirri úrslitastundu fara að hrökkva upp úr honum ýmis sundurlaus lífssannindi. Ein setning er eftirminnileg og nú þegar við erum að ákveða í hvaða átt skuli haldið hjá okkar frjálsu og fullvalda þjóð væri kannski hollt fyrir okkur öll, og ekki síst forsætisráðherrann sjálfan, að hafa þessa speki hugfasta í öllum hávaðanum. Jón Hreggviðsson segir, með leyfi forseta: „Það sem maður tekur ekki hjá sjálfum sér, tekur maður hvergi.“