Almennar stjórnmálaumræður.
Virðulegi forseti. Hv. þm. Snorri Másson hitti mig á göngunum áðan og grínaðist með að við ættum að bera saman bækur okkar svo við myndum ekki fjalla um það sama í ræðunum okkar. Ég held að þær áhyggjur séu nú óþarfar í ljósi ræðu hv. þingmanns. Mér heyrist hann t.d. ekkert hafa fjallað um háan vaxtakostnað heimilanna af krónunni þannig að það kemur víst í minn hlut að gera það. Hann hefur heldur ekkert fjallað um hátt verð á pítsum þannig að ég tek það víst að mér.
Ég ætla aðeins að tala um pítsur. Mér finnst skemmtilegt að gera pítsur. Mér finnst skemmtilegt að hnoða í pítsudeig, gera það sjálfur. Mér finnst skemmtilegt að gera pítsusósuna frá grunni. Oftast þegar ég geri pítsur heima þá geri ég fjórar litlar pítsur. Ef við göngum í Evrópusambandið þá mun ég hafa efni á fimm litlum pítsum fyrir sama verð. Ég veit ekki hvort það sé betra fyrir línurnar en látum það nú eiga sig. En ég geri samt ekki allt frá grunni. Ég mala t.d. ekki mitt eigið hveiti og ég geri ekki mitt eigið pepperóní og ekki minn eigin mozzarellaost. Ég læt fagfólkið um það. En við höfum heyrt þetta í marga áratugi: Við getum gert þetta sjálf. Við þurfum ekki að taka upp evru til að fá lága vexti. Við getum bara gert þetta sjálf. Við höfum heyrt þetta í marga áratugi og ESB-andstæðingar hafa auðvitað verið hér við völd, við stjórnvölinn, í marga áratugi. Og hvernig hefur það gengið? Við höfum búið hér við miklu hærri vexti og miklu hærri verðbólgu heldur en nágrannalöndin okkar í marga áratugi. Árið 2013 var viðræðuferlið stöðvað af ESB-andstæðingum og við tók áratugur þar sem fólk gat nokkurn veginn óslitið stjórnað hagvextinum og hagað málum eins og það vildi. Og hvernig gekk það? Í hve mörg ár af þessum tíu eða ellefu árum voru vextir á Íslandi lægri heldur en í Evrópu? Núll. Ekkert eitt einasta ár. Þannig að ég spyr bara: Hve marga áratugi í viðbót þurfa ESB-andstæðingar að fá til þess að íslensk heimili njóti hér eðlilegra vaxtakjara?
Vextir húsnæðislána á Íslandi eru yfir 9%, á evrusvæðinu eru þeir 3–4%. Íslensk heimili skulda 3.000 milljarða í húsnæðislán þannig að ofgreiðsla íslenskra heimila í vexti vegna krónu, varlega áætlað, eru 100 milljarðar á ári. Ung fjölskylda, sem skuldar t.d. 60 milljónir í húsnæðinu sínu, borgar 3 milljónir á ári í viðbótarkostnað vegna krónu. Og það deilir ekki neinn einu sinni um þetta. Sérfræðingar eru sammála um að vextir myndu lækka með evru. Fólk er bara ósammála um hvort ókostirnir vegi þyngra en kostirnir. En ég segi: Ókostirnir þurfa að vera ansi miklir ef þeir réttlæta þennan ofurkostnað sem við leggjum á íslensk heimili.
Matarkarfan, hún myndi lækka. Matarkarfan lækkaði um fjórðung þegar Finnland og Svíþjóð gengu inn í Evrópusambandið. Það var aukin samkeppni og afnám tollverndar sem leiddi til þess að það skilaði sér í vasa neytenda. Ísland og Noregur voru með EES-leiðina. Þau áhrif voru ekki sýnileg þar. Þetta kemur fram í skýrslu Hagfræðistofnunar. Framleiðendur myndu fá betri markaðsaðgang inn á stærsta markaðssvæði okkar, t.d. með sjávarútvegsafurðir, með eldisfisk, reyndar líka til Bretlands því að Evrópusambandið og Bretar hafa samið um fullt tollfrelsi sín á milli, eitthvað sem við höfum ekki gert.
Við skulum samt vera einlæg með það að Evrópusambandið er viðskiptabandalag og það er tollabandalag. En á tímum þegar viðskipti hafa verið vopnvædd og þegar tollar eru í auknum mæli notaðir til að ná fram pólitískum markmiðum, eins og sást í Grænlandsmálinu, þá er ákjósanlegt að vera hluti af slíku bandalagi. Það snýst um efnahagslegt fullveldi og þjóðaröryggi. Við erum í NATO. Af hverju erum við í NATO? Það er til að tryggja okkar hernaðarlegu varnir. Evrópusambandið, Evrópusamstarf, er besta leiðin til að tryggja okkar efnahagslegu varnir.
Að lokum, frú forseti. Þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst, hún snýst ekki um aðild. Hún snýst um aðildarviðræður. Og það er rétt að þrátt fyrir að það sé óumdeilt að kjör íslenskra heimila myndu batna til muna við aðild að ESB og upptöku evru þá er það líka staðreynd að það eru áleitnar spurningar í stórum, mikilvægum atvinnumálum okkar varðandi ýmsa þætti sem varða ESB-aðild. En þeim spurningum verður ekki svarað öðruvísi en í viðræðum. Það eru þjóðir sem hafa fengið sérlausnir. Það eru þjóðir sem hafa fengið undanþágur og við leiðum þessar spurningar ekki í jörð öðruvísi en að ganga til viðræðna. Þess vegna eigum við að gera það hnarreist og stolt og segja já 29. ágúst.
Forseti. Ég hef lokið máli mínu.