157. löggjafarþing — 122. fundur,  10. júní 2026.

Almennar stjórnmálaumræður.

[20:19]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegur forseti. Kæru landsmenn. Þegar ég stóð hér í þessum ræðustól í fyrsta sinn þann 1. desember 2021 var ég að stíga mín fyrstu skref í stjórnmálum. Ég hafði þá árum saman starfað með fólki sem barðist í óvissu frá degi til dags við að halda heimili sínu, fólki sem hafði misst húsnæði sitt og fannst enginn vera að tala máli þess. Hagsmunasamtök heimilanna spruttu upp úr vonleysi þúsunda heimila og fjölskyldna sem mörg hver eru enn í sárum. Það var þessi barátta sem fyrst og fremst rak mig í framboð fyrir alþingiskosningarnar 2021. Þess vegna fjallaði ég um húsnæðisöryggi og réttlæti í fyrstu ræðu minni á Alþingi, um nauðsyn þess að stjórnmálin þjónuðu fólkinu í landinu en ekki öfugt. Það er þessi sama sannfæring sem hefur drifið mig áfram á hverjum degi síðan.

Núna er ég reynslunni ríkari um hverju er hægt að áorka þegar raunverulegt tækifæri gefst. Mig langar, með leyfi forseta, að lesa bút úr jómfrúrræðu minni frá 1. desember 2021:

„Mér finnst ástæða til að ræða húsnæðiskostnaðinn því að hann er stærsti útgjaldaliður flestra og ræður í raun úrslitum um afkomu heimilanna. Síðastliðna mánuði hefur Seðlabankinn hækkað vexti í þrígang, að sögn til að slá á þenslu og verðbólgu. Ég spyr: Hvernig í ósköpunum eiga hækkandi álögur á íslensk heimili að slá á verðbólgu sem fyrst og fremst stafar af ófyrirsjáanlegum, óviðráðanlegum og utanaðkomandi áhrifum vegna heimsfaraldurs sem hefur haft gríðarleg áhrif um allan heim? Þessar vaxtahækkanir hafa þegar aukið húsnæðiskostnað allra íslenskra heimila svo um munar. Til að bæta gráu ofan á svart er Ísland eina þjóðin í heiminum sem tengir húsnæðislán heimilanna við neysluvísitölu, sem hefur einnig bein áhrif á leigusamninga sem flestir eru verðtryggðir.“

Það má segja að ég hafi ítrekað flutt þessa sömu ræðu í ýmsum myndum, allt frá fyrsta degi. Sannfæring mín hefur ekkert breyst og nú þegar Flokkur fólksins er í meiri hluta getum við og höfum komið mörgu til leiðar þó að margt sé enn óunnið. Það er staðreynd að mörg undanfarin ár hefur ófremdarástand í húsnæðismálum verið einn helsti vandinn sem við stöndum frammi fyrir. Allt of fáar íbúðir hafa verið byggðar sem henta venjulegum fjölskyldum og þeim sem minnstar hafa tekjurnar. Fasteignaverð hefur rokið upp, langt umfram kaupmátt, mikið til vegna brasks á fasteignamarkaði þar sem heimilin í landinu hafa verið leiksoppar gróðaafla. Draumurinn um öruggt húsnæði hefur orðið allt of mörgum sífellt fjarlægari draumur, ekki hvað síst ungu fólki. Leigjendur hafa búið við mikið óöryggi og glímt við mikla greiðslubyrði á húsaleigu sem kemur í veg fyrir sparnað fyrir útborgun í eigin húsnæði.

Þegar núverandi ríkisstjórn tók við í árslok 2024 hafði húsnæðismarkaðurinn fengið að þróast á lögmálum villta vestursins í áratugi. Ríkisstjórnin hefur þess vegna lagt sérstaka áherslu á aðgerðir í húsnæðismálum. Þar hefur svo sannarlega verið tekið til hendinni undir forystu ráðherra Flokks fólksins í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. Fyrstu tveir aðgerðapakkar ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum hafa þegar verið kynntir og unnið er að enn frekari aðgerðum. Flokkur fólksins hefur gert húsnæðismál og húsnæðisöryggi að forgangsmáli innan ríkisstjórnarinnar. Við höfum gripið til aðgerða sem auðvelda fyrstu kaupendum að komast inn á húsnæðismarkaðinn. Við höfum styrkt hlutdeildarlánakerfið til að auðvelda fyrstu kaupendum og tekjuminni einstaklingum og fjölskyldum að eignast heimili. Við höfum lagt áherslu á uppbyggingu hagkvæmra íbúða og aukið samstarf ríkis og sveitarfélaga í uppbyggingu þeirra. Við höfum gripið til aðgerða til að gera húsnæðiskerfið réttlátara og aðgengilegra. Fyrstu tveir húsnæðispakkar ríkisstjórnarinnar mörkuðu mikilvæg skref í átt að stöðugri og réttlátari um markaði.

Fleiri úrræði og aðgerðir eru í undirbúningi. Lögð er áhersla á að auka framboð íbúða, bæta stöðu fyrstu kaupenda og skapa raunveruleg tækifæri fyrir fólk sem áður hafði litla eða enga möguleika á að komast inn á markaðinn og unnið hefur verið að einföldun regluverks í uppbyggingu húsnæðis, auknum stuðningi við hagkvæma íbúðauppbyggingu og aukið fjármagn tryggt í hlutdeildarlán til frambúðar. En húsnæðismálin snúast ekki bara um tölur á blaði. Þau snúast um velferð fólksins í landinu, möguleika þess til að stofna fjölskyldu og eignast öruggt húsaskjól, hvort sem er til eignar eða leigu.

Ríkisstjórnin hefur einnig skilað árangri á fleiri sviðum en í húsnæðismálum. Við höfum staðið vörð um og bætt kjör eldri borgara. Auk þess höfum við innleitt nýtt örorkulífeyriskerfi sem bætir kjör og eykur sveigjanleika fólks til að koma að hluta eða að öllu leyti inn á vinnumarkaðinn. Öll okkar mál miða að jöfnuði og sanngirni vegna þess að Flokkur fólksins hefur aldrei gleymt því hvers vegna hann var stofnaður; fyrir fólkið sem hefur orðið undir af ýmsum orsökum, fyrir eldri borgara sem hafa lagt sitt af mörkum fyrir land og þjóð í áratugi, fyrir mannsæmandi kjör öryrkja og fatlaðs fólks sem hafa verið afgangsstærð við skiptingu þjóðarkökunnar, fyrir efnaminni barnafjölskyldur að sligast undan auknum kostnaði við að reka heimili, fyrir fólkið fyrst og svo allt hitt þannig að allir geti eignast eða leigt öruggt heimili á sanngjörnum og viðráðanlegum kjörum.

Virðulegi forseti. Þegar ég lít til baka sé ég að margt hefur áunnist en ég geri mér líka grein fyrir að við eigum enn eftir að ljúka mörgum stórum og mikilvægum verkefnum. Húsnæðismálin eru t.d. ekki í höfn á meðan fjöldi fólks er enn að ströggla við að kaupa sína fyrstu íbúð. Staðan á leigumarkaði er einnig langt í frá góð. Þess vegna vinnum við að því að fjölga félagslegu leiguhúsnæði í samvinnu við verkalýðshreyfinguna. Og þrátt fyrir bætur á kjörum eldri borgara ætlum við að gera enn betur.

Það má segja að æðruleysisbænin hafi verið bænin mín á þessum árum sem ég hef verið á þingi: Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég fæ breytt og vit til að greina þar á milli. Það er nefnilega æðimargt sem alþingismenn geta ekki gert einir, án mikillar samstöðu og þátttöku meiri hluta þingmanna, til að breyta þeim kerfum sem hafa verið við lýði svo áratugum skiptir. Hvorki ég né félagar mínir í Flokki fólksins erum hrædd við að taka slaginn. Flest okkar voru kjörin á þing eftir að hafa tekið stóra slagi við sterk og ríkjandi öfl í samfélaginu. Allt of lengi höfum við þurft að sætta okkur við að geta ekki varið heimilin fyrir því vaxtaokursofbeldi sem þau hafa verið beitt undanfarin ár. Það er ekki þar með sagt að við höfum gefist upp þótt við höfum þurft vit til að greina á milli þess sem við getum breytt og fáum ekki breytt, a.m.k. ekki að svo stöddu.

Ég hef hins vegar bjargfasta trú á því að tíminn vinni með okkur. Það blasir við sífellt fleirum að óbreytt staða gengur ekki upp. Það tekur tíma að vinna stóra slagi við sterk öfl en það er gott að muna að dropinn holar steininn. Þótt endanlegur sigur hafi ekki unnist á vaxtaokrinu getum við samt fagnað þeim sigrum sem unnist hafa á stuttum tíma og ég rakti að hluta hér að framan. Baráttunni er ekki lokið og hugsjónin er alltaf hin sama: Fólkið fyrst og svo allt hitt. Allir eiga rétt á afkomu- og húsnæðisöryggi. Réttlæti getur ekki aðeins átt við suma en ekki aðra. Okkur sem sitjum á Alþingi ber að tryggja að allir hafi raunveruleg tækifæri til að lifa góðu lífi.

Jómfrúrræðan mín á Alþingi hinn 1. desember 2021 bar í sér von, von um að hægt væri að breyta hlutum. Á undanförnum 17 mánuðum höfum við breytt mjög mörgu til betri vegar. Við höfum sýnt og sannað að rödd fólksins skiptir máli. Við höfum sýnt að þegar fólk stendur saman er hægt að færa samfélagið til betri vegar. Við í Flokki fólksins höldum þeirri vegferð áfram í samhentri ríkisstjórn sem er einhuga um að láta verkin tala. Höldum alltaf í vonina og byggjum Ísland þar sem enginn gleymist eða er skilinn eftir.