157. löggjafarþing — 122. fundur,  10. júní 2026.

Almennar stjórnmálaumræður.

[20:28]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (U):

Virðulegur forseti. Kæru landsmenn. Að vera utan flokka er ekki ákvörðun sem ég tók af léttúð heldur var ígrundað mál og ég átti engra annarra kosta völ. Það er ekki hægt að veikjast rétt eða rangt, enn síður að sjá afleiðingar af veikindum fyrir fram. Það er yfirleitt eftir á, eftir aðgerðir og endurhæfingu, sem það kemur í ljós hvaða afleiðingar veikindi hafa fyrir viðkomandi og þá einnig hvaða áhrif þau hafa á starf viðkomandi. Veikindi geta haft töluverð áhrif á fjölskyldu viðkomandi og þar þarf að gæta fyllstu varúðar og tillitssemi en ekki vera með yfirgang og tillitsleysi. Það þarf að koma fram við alla á sama hátt og allir vilja að komið sé fram við þá í sömu aðstöðu, þ.e. af virðingu og nærgætni. Það kostar ekkert en gæti komið í veg fyrir ófyrirséðar afleiðingar.

En snúum okkur að öðru. Við höfum byggt upp að mörgu leyti gott kerfi sem á að grípa veikt fólk og afleiðingar þess, sem er almannatryggingakerfið okkar. En því miður höfum við líka sett inn endalausar gildrur í formi keðjuverkandi skerðinga sem núverandi ríkisstjórn er virkilega byrjuð að taka á og breyta. Við heyrum talað um að fólk sé að svindla sér inn í kerfið til að hafa það virkilega gott þar og það sé mjög auðvelt að setja sig inn í það. Nei, það er langt frá því að vera rétt því það er yfirleitt niðurlægjandi og sársaukafullt ferli sem tekur við þegar sótt er um örorkumat. Ég hef alltaf sagt að þeir sem svindla sér inn í þetta kerfi og ílengjast í því eigi þar heima. Þeir eru alvarlega veikir að mínu áliti.

Virðulegur forseti. Ríkisstjórnin er að taka til hendinni og draga úr öllum skerðingum og mun síðan stefna að því að afnema allar þessar keðjuverkandi skerðingar og þannig gera þetta kerfi eins mannúðlegt og gott og hægt er. Bótaþegi er niðrandi orð. Greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins eru lífeyrislaun og áunnin réttindi. Gleymum því aldrei. Ríkisstjórnin berst gegn fátækt og það er eitt af forgangsmálum hennar því áhrif fátæktar á heilsu fólks og barna eru grafalvarleg. Háskólinn í Bretlandi gerði könnun fyrir áratug síðan um áhrif fátæktar á heilsu og það sem kemur fram um dauðsföll meðal Breta sem búa við fátækt, þá sérstaklega kvenna, er sláandi. Munur á milli kvenna sem lifa við fátækt og þeirra sem lifa við velmegun er sjö ár og bilið eykst. Þetta eru mjög sláandi tölur og sýna nauðsyn þess að við höldum ótrauð áfram í því að útrýma fátækt, ekki bara ríkisstjórnin heldur við öll hér inni.

Virðulegur forseti. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hefur verið lögfestur og hefur einnig viðauki hans verið fullgildur. Með lögfestingu hans og fullgildingu viðaukans á að koma í veg fyrir hvers kyns mismunun á grundvelli fötlunar; að fötluðu fólki sé tryggð jöfn og árangursrík réttarvernd gegn mismunun á öllum sviðum. Þá hefur verið samþykkt að aldurstengd uppbót öryrkja verði þeirra lífeyrislaun við 67 ára aldur en fatlaðir frá fæðingu eða unga aldri eiga eðli málsins samkvæmt sjaldan fjárhæðir í lífeyrissjóðum. Þá hefur ríkisstjórnin einnig tekið skref í að eyða þeirri kjaragliðnun sem hefur átt sér stað milli lífeyristekna annars vegar og launa hins vegar. Þann 1. júní síðastliðinn fengu 31.000 einstaklingar það inn á síður sínar að tekjur þeirra frá Tryggingastofnun ríkisins, þ.e. lífeyrisgreiðslur þeirra, yrðu skertar. Miðgildi þeirrar skerðingar var 100.500 kr. Á sama tíma komu einnig gleðifréttir: 30.000 einstaklingar, 1.000 færri, fá leiðréttingu, fá endurgreitt — 58.000 kr. er miðgildi þeirra greiðslna. En hvers vegna í ósköpunum eruð þið með kerfi þar sem 61.000 einstaklingar, af 85.000 einstaklingum, fá rangt greitt? Er ekki hægt að reikna þetta rétt? Nei, því miður, það er ekki hægt. Það er vegna þess að við gerum þá kröfu eingöngu á eldri borgara og öryrkja að þeir geti reiknað út vísitölu og vexti. Þeir sem eru á lífeyrislaunum eiga meira að segja að sjá fram í tímann og setja inn nákvæmlega hvað þeir mega reikna með að fá miðað við vísitölu, vexti og aðrar hækkanir út árið. Það segir sig sjálft að það er ekki hægt. Þetta er flókið kerfi og það á ekki að vera svona. Sem betur fer erum við að breyta því.

Virðulegur forseti. Ég fer bjartsýnn inn í sumarið. Hér er komin ríkisstjórn sem lætur verkin tala, ríkisstjórn sem gengur ekki erinda fárra útvalinna heldur berst gegn fátækt og vill tryggja mannréttindi allra. Hún setur velferð fólks og barna í fyrsta sæti og mun halda ótrauð áfram á þeirri braut.

Kæru landsmenn. Gleðileg sumar.