157. löggjafarþing — 122. fundur,  10. júní 2026.

Almennar stjórnmálaumræður.

[20:33]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Hæstv. orkumálaráðherra ræddi hér áðan um afrek ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum. Eitthvað virðist straumurinn hafa rofnað við raunveruleikann hjá hæstv. ráðherra því að afrek ríkisstjórnarinnar eru í rauninni hæsta atvinnuleysi síðan í Covid, meiri verðbólga og ekki tókst þeim bara að stöðva vaxtalækkunarferlið sem hafið var í tíð síðustu ríkisstjórnar — nei, við höfum fengið ekki bara eina heldur tvær stýrivaxtahækkanir og næsta er væntanleg í ágúst.

Hæstv. ráðherra. Við styrkjum ekki Ísland með ófjármagnaðri samgönguáætlun eða einhverju hókus-pókus-innviðafélagi, þaðan af síður með því að skattpína fólk og fyrirtæki í landinu.

Kæru landsmenn. Menntamálin eru að mínu mati einn mikilvægasti málaflokkur samfélagsins. Í skólunum er framtíð landsins mótuð. Þar er lagður grunnurinn að tækifærum barnanna okkar og samkeppnishæfni þjóðarinnar til framtíðar. Þessu viðfangsefni verður aldrei útvistað til Brussel. Þar er engar lausnir að finna. Hvernig hefur ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur forgangsraðað í þessum mikilvæga málaflokki? Á þeim 18 mánuðum sem liðnir eru af kjörtímabilinu hafa þrír ráðherrar gegnt embætti mennta- og barnamálaráðherra og ef taldir eru með þeir sem hafa hlaupið í skarðið tímabundið eru þeir reyndar orðnir fimm, eða 50% af þingflokki Flokks fólksins. Það er kannski gott að deila með öðrum en öllu má nú ofgera.

Sem betur fer hafa nokkur mikilvæg mál sem lágu fyrir frá fyrri ríkisstjórn klárast en ef við horfum á þau mál sem ríkisstjórnin hefur sett á oddinn verður myndin nokkuð sérstök. Skorið hefur verið niður til framhaldsskólastigsins um tæp 7% auk þess sem einstaka skólastjórnendum hefur verið bolað út úr embætti. Hins vegar höfum við fengið hið margumtalaða símabann. Símabannið mikla hljómar reyndar frekar eins og titill á skáldsögu en þingmál. Ég reyndar fullyrði að skáldsagan eftir Gunnar Helgason er miklu betri en þingmálið því að þegar betur var að gáð kom í ljós að það átti ekki að banna síma, það átti að veita ráðherra heimild til að setja reglur um símanotkun einhvern tímann seinna. Reglurnar voru ekki tilbúnar en þær átti að semja í breiðu samráði. Staðan er hins vegar sú að sveitarfélögin og grunnskólarnir eru löngu búin að vinna þessa vinnu. Flest sveitarfélög landsins hafa þegar markað sér stefnu og nær allir grunnskólar sett sér reglu. Þannig fór talsverður tími Alþingis og ráðuneytisins í að leysa vandamál sem aðrir höfðu þegar leyst.

Næsta stóra umbótamál menntamálaráðherra er að breyta einkunnagjöfinni. Það kann vel að vera að fyrir því séu ágætisrök en er það forgangsverkefni? Á meðan PISA-niðurstöður sýna versnandi árangur íslenskra nemenda, á meðan kennarar kalla eftir svigrúmi til kennslu í stað sívaxandi annars konar verkefna, á meðan of mörg börn ná ekki þeirri grunnfærni sem þau þurfa til áframhaldandi náms þá á að breyta mælikvarðanum. Það eykur ekki hæfni nemenda.

Það er álíka röksemd og að halda því fram að lambalærið sem margir hyggjast setja á grillið um helgina verði ódýrara ef greitt er fyrir það í evru í stað króna. En það ótrúlega er reyndar að það er einmitt það sem þessi ríkisstjórn er að reyna að selja okkur. Málflutningur stjórnarliða, og þá sérstaklega Viðreisnar, er að lausnin á verðbólgu, vöxtum og efnahagsvanda Íslands sé ekki fólgin í betri hagstjórn heldur í því að skipta um gjaldmiðil. Það er auðvitað freistandi að halda því fram að vandamálið bara hverfi ef við skiptum um mynt en hagfræðin er því miður ekki svo einföld. Slæm hagstjórn verður ekki góð hagstjórn bara af því að reikningarnir eru skrifaðir í evrum.

Virðulegur forseti. Vandamál Íslands verða ekki leyst með því að flytja umræðuna til Brussel. Þau verða leyst hér á Alþingi Íslendinga með ábyrgri hagstjórn, skýrri forgangsröðun og pólitískum kjarki. Og það er líklega vandamálið, ríkisstjórn sem virðist vera farin að leita að nýjum gjaldmiðli þegar það sem hana vantar er nýtt plan.

Kæru Íslendingar. Gleðilegt sumar þar sem við getum haldið áfram að ræða um ESB og pítsubakstur Viðreisnar og grillað lambalærið okkar. Njótum sumarsins.