Almennar stjórnmálaumræður.
Frú forseti. Góðir Íslendingar. Nú eru 18 mánuðir síðan þessi ríkisstjórn tók við en það mætti stundum halda að þeim finnist þau enn vera hér í starfskynningu. Eitt helsta einkenni hæstv. ríkisstjórnar er að auglýsa fyrirætlanir sínar með miklum tilþrifum eða jafnvel leiksýningum og upphugsa frasa svo að þetta líti nú allt vel út. En svo verður ekki neitt úr neinu.
Lítum á nokkur dæmi um viðbrögð þeirra og aðferðir. Þjóðin stendur frammi fyrir háum vöxtum og verðbólgu. Þau hafa svör við því: Sveiflum sleggjunni og berjum vextina niður. En einmitt þessi lýsing reyndist upphafsstef þessarar ríkisstjórnar. Með hraði átti að berja þessar ókindur niður. Vandamálið er vöxtur báknsins. Þeirra svar: Við auglýsum eftir tillögum frá þjóðinni um hvar við getum hagrætt. Og hvernig er brugðist við langvarandi aðgerðaleysi í samgöngumálum? Hvað sögðu þau? Ræsum vélarnar. Vandamálið er minni verðmætasköpun. Og hvað sagði ríkisstjórnin, hver voru viðbrögð hennar? Verðmætasköpunarhaust — verðmætasköpunarhaust. Nei, frú forseti. Þessi hæstv. ríkisstjórn hafði ætlað sér að stjórna landinu með frösum en ekki aðgerðum, frösum sem í hvert skipti af öðru reyndust innihaldslausir, orðin tóm.
Sleggjunni var aldrei sveiflað því að vextir hækkuðu og verðbólgan jókst, mest fyrir þeirra eigin tilverknað. Ekkert var gert með þær þúsundir tillagna sem bárust um aðhald í ríkisrekstri. Ríkið bólgnar sem aldrei fyrr. Ríkisútgjöld jukust um 143 milljarða og það eina sem vex virkilega vel í höndum þessarar ríkisstjórnar eru útgjöldin og auðvitað fjöldi ríkisstarfsmanna. Samgönguumbætur láta á sér standa og það hafa engar vélar verið ræstar. Helst er að skilja að slík verkefni eigi heima og komi í hlut næstu ríkisstjórnar eða þarnæstu ríkisstjórnar. Verðmætasköpunarhaustið leið og verðmætin sem þjóðin skapar drógust fremur saman, mest fyrir þeirra eigin hagstjórnarmistök. Endalausar skatta- og gjaldahækkanir. Og hæstv. ríkisstjórn skilur bara hreinlega ekkert í þessu. Hvernig gat þetta gerst? Í hverju erum við lent? Það er eitt orð yfir gjörðir hæstv. ríkisstjórnar og það er orðið uppgjöf. Þau hafa gefist upp á verkefni sínu og leitast við að framlengja líf ríkisstjórnarinnar með Evrópuvegferð sinni sem enginn hefur beðið um. Nei, frú forseti. Hæstv. ríkisstjórn veldur ekki verkefni sínu sem var að ná niður vöxtum og verðbólgu.
Kæru Íslendingar. Fyrir það fyrsta var hæstv. ríkisstjórn fyrirmunað að bera upp eðlilega spurningu fyrir þjóðina og var gerð afturreka með þá spurningu af landskjörstjórn og Feneyjanefndinni. Treystum við þessari ríkisstjórn fyrir þessum leiðangri? Hæstv. fjármálaráðherra Viðreisnar var gerður afturreka með ummæli sín þar sem hann lagði sérfræðinefnd orð í munn sem hvergi er að finna í skýrslu nefndarinnar um kosti evru umfram krónu. Treystum við Viðreisn fyrir þessari Evrópuvegferð? Hæstv. ríkisstjórn fæst ekki til að upplýsa þjóðina um hver samningsmarkmið okkar verða í viðræðunum ef til þeirra kemur. Nei, það kemur bara ekki til greina. Nei, frú forseti. Er hér ekki eitthvað rotið í Danaveldi? Þau geta ekki fengið sig til að segja að full og óskoruð yfirráð Íslendinga yfir auðlindum sínum sé ófrávíkjanleg krafa í viðræðunum, ef til þeirra kemur. Þau fást ekki til að segja það. Eru slíkir stjórnarhættir fallnir til þess að vekja traust, frú forseti? Nei. Hæstv. ríkisstjórn skynjar að þjóðin treystir þeim ekki og því er betra að fara í vel útfærða auglýsingaherferð. Mun þjóðin treysta hæstv. utanríkisráðherra til að skipa samninganefnd í viðræðum við Evrópusambandið? En sá ráðherra tilkynnti okkur stolt í haust um samning um skertan hlut okkar til veiða í makrílstofninum. Munu kjósendur treysta hæstv. utanríkisráðherra Viðreisnar til að leiða komandi viðræður eftir að hún taldi verndartolla Evrópusambandsins, sem á okkur voru lagðir í haust, ásættanlega niðurstöðu? Nei, frú forseti. Þau sjá að þjóðin treystir þeim ekki og þau munu því reyna allt til að afvegaleiða umræðuna frá aðalatriðunum. Hvernig dettur Samfylkingunni í hug að leikstýra þessum farsa?
Ágætu landsmenn. Í sínum innsta kjarna snýst þjóðaratkvæðagreiðslan um hvort þjóðin treystir hæstv. utanríkisráðherra til að verja fullveldi þjóðarinnar og auðlindir í viðræðum í Brussel. Treystir þjóðin hæstv. utanríkisráðherra fyrir fjölskyldusilfri okkar Íslendinga?
Ágætu Íslendingar. Gleðilegt sumar.