157. löggjafarþing — 122. fundur,  10. júní 2026.

Almennar stjórnmálaumræður.

[20:50]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V):

Virðulegur forseti og kæra þjóð. Ég ætla að leyfa mér að vera á svolítið einlægum nótum hér í kvöld. Ég hef nefnilega miklar áhyggjur af því hvert við erum að þróast sem samfélag. Við erum læst í ólíkum bergmálshellum. Við sjáum ekki né heyrum í hvert öðru. Við erum ótengd og að mínu mati pikkföst í efsta stigi. Gífuryrði, ofsabeitur og stöðugt áreiti einkenna daglegt líf okkar. Það er orðið að einhvers konar normi að lesa viðurstyggilegar athugasemdir við fréttir af málefnum líðandi stundar.

Ég tek dæmi, með leyfi forseta: Þessi manneskja ásamt eiginkonu sinni verður hengd á Austurvelli von bráðar fyrir landráð og andlegt og kynferðislegt ofbeldi gagnvart saklausum skólabörnum. — Þessi orð voru skrifuð um mig og eiginkonu mína á dögunum.

Og með leyfi forseta: Þetta fólk verður tekið af lífi fyrir gróf landráð innan skamms. — Þetta var skrifað við mynd af nýrri stjórn Evrópuhreyfingarinnar.

Að lokum, með leyfi forseta: Það á að senda þennan helvítis Pólverja heim til sín. — Það sá ég skrifað um hv. þingmann og vin minn, Pawel Bartoszek.

Þetta er skrifað af venjulegri manneskju á bak við lyklaborð eða kannski af einhvers konar gervimenni sem er hannað til að þyrla upp ryki eða búa til reiði. Ég hugsa að hver einasti stjórnmálamaður hér inni kannist við athugasemdir af þessum toga úr öllum áttum. Ég hef velt því fyrir mér hvað það er sem veldur því að við erum komin á þennan stað. Hvaða tilgangi þjónar þetta? Ég viðurkenni að maður er orðinn hálfdofinn yfir þessari heift og þessu myrkri. Kannski eruð þið orðin það líka.

Ég gæti auðvitað fjallað hér í dag um öll verk ríkisstjórnarinnar, sem eru svo ótal mörg; efnahagsmálin, samgöngumálin, orkumálin, geðheilbrigðismálin, menntamálin, um ofbeldi og skuggahliðar samfélagsins. En, forseti, ég vil nýta mína mínútu hér í kvöld til að hvetja okkur öll til að gera betur, líta upp frá skjánum, leggja niður símann og spyrja okkur gagnrýninna spurninga. Hvernig enduðum við hér? Hverjir græða á því að breikka gjána á milli okkar? Hvernig getum við snúið af þessari leið? Hjálpar það málstaðnum að öskra stöðugt á hvert annað?

Við eigum að sjálfsögðu að hafa ólíkar skoðanir. Við eigum að tjá þær. Við eigum að rökræða. Við eigum að vera óhrædd við að vera ósammála. Þannig virka stjórnmálin. En pólitík á ekki að vera persónuleg. Það vegur að lýðræðinu. Það vegur að tjáningu okkar. Það vegur að persónufrelsi og öryggi. Það vegur að grunngildum okkar og það býr til heim þar sem búið er til einhvers konar opið skotleyfi á jaðarsetta hópa, opið skotleyfi á fólk sem gefur sig að samfélagsmálunum. Það finnst mér vera vond þróun og beinlínis hættuleg.

Kæru landsmenn. Kannski sýna fá mál þessa þróun betur en sjálf Evrópumálin. Þar eru stærstu bergmálshellar dagsins í dag. Við erum með já-hellinn og við erum með nei-hellinn. Stundum er eins og hvorug hliðin trúi því að hin sé í góðri trú með sínar meiningar. Ég get rétt ímyndað mér að þau ykkar sem eru enn óviss um það hvort það sé rétt að hefja aðildarviðræður á ný eða ekki séu svolítið ringluð. Upplýsingaóreiðan er rosaleg. Staðreyndirnar fjúka út um veður og vind og allt er gert til að tortryggja.

Kæri óvissi hópur. Hugur minn er hjá ykkur. Ég vona að þið nýtið sumarið vel í að ígrunda mál ykkar en umfram allt vonast ég til þess að við tökum þessa umræðu af virðingu, af yfirvegun og af þeirri auðmýkt að viðurkenna að fólk getur komist að ólíkri niðurstöðu af heiðarlegum ástæðum.

Þann 29. ágúst fær þjóðin orðið. Ég vona persónulega að hún segi hátt og skýrt já við því að sjá samning. Það hefur ekki í för með sér sjálfkrafa aðlögun að ESB. Það hefur ekki í för með sér tap á fullveldi eða sjálfstæði þjóðarinnar. Persónulega finnst mér skrýtið að sjálfstæð og fullvalda þjóð eigi ekki sæti við borðið, eigi ekki rödd við borðið þar sem ákvarðanir eru teknar um okkar daglega líf á hverjum einasta degi. Ég spyr því einfaldlega: Hvers konar sjálfstæði er það?