Almennar stjórnmálaumræður.
Virðulegi forseti. Kæru landsmenn. Halldór Laxness orti, með leyfi forseta:
Þar er auðsýnt þurradramb
þeim sem út er borinn,
eingin sól rís yfir kamb
yfir döggvuð sporin.
Þar sést hvorki lítið lamb
né lambagras á vorin
Þetta fallega ljóð minnir okkur á hvað gerist þegar fólk er skilið eftir. Þegar einstaklingar og fjölskyldur verða undir í samfélaginu, þegar enginn grípur þá sem falla, verður til veruleiki þar sem sólin rís ekki yfir kamb. Hlutverk stjórnvalda er einmitt að koma í veg fyrir að nokkur maður upplifi slíka örbirgð og vonleysi. Samkennd og ábyrgð gagnvart þeim sem minnst mega sín er sá mælikvarði sem hvert réttlátt samfélag verður að standa saman um.
Flokkur fólksins var stofnaður með þetta að leiðarljósi; fólkið fyrst og svo allt hitt. Í okkar huga eiga stjórnmálin fyrst og fremst að snúast um fólk og lífsgæði þess, um daglegt líf þess, afkomu og framtíð. Við beitum okkur í málefnum þeirra sem standa höllum fæti í samfélaginu, að enginn verði skilinn eftir á hliðarlínunni. að allir, óháð efnahag, aldri eða aðstæðum, fái tækifæri til að skapa sér gott líf og leita hamingju.
Þegar Flokkur fólksins gekk til ríkisstjórnarsamstarfs gerðum við það með skýrt markmið: Að styrkja stöðu eldri borgara, öryrkja, barnafjölskyldna, þeirra efnaminni. Vera rödd þeirra sem ekki hefur verið hlustað á áratugum saman þótt hjalað væri um hagsmuni þeirra skömmu fyrir kosningar.
Nú þegar kjörtímabilið er tæplega hálfnað höfum við þegar náð mikilvægum áföngum, jafnvel náð fram miklum sigrum og lagt grunninn að enn fleiri mikilvægum framfaramálum. Á aðeins 17 mánuðum höfum við meðal annars náð fram lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Við höfum tryggt sorgarleyfi í lögum, aukið rétt fjölburaforeldra og bætt stöðu kvenna sem glíma við alvarleg veikindi á meðgöngu. Við höfum ráðist í umfangsmestu umbætur á almannatryggingakerfinu í áratugi. Aldursviðbót þeirra sem hafa verið öryrkjar eða fatlaðir frá fæðingu eða urðu það snemma á ævinni helst nú ævilangt. Greiðslur úr almannatryggingakerfinu fylgja nú launavísitölu þannig að þeir sem reiða sig á kerfið sitji ekki eftir þegar laun hækka í landinu. Frítekjumark ellilífeyris vegna greiðslna úr lífeyrissjóðum hefur verið hækkað verulega og mun hækka enn frekar á kjörtímabilinu. Frítekjumark vegna atvinnutekna hefur einnig hækkað umtalsvert.
Hátt í 20.000 efnaminnstu ellilífeyrisþegarnir fengu í fyrsta skipti greiddan sérstakan jólabónus fyrir síðustu jól og þessi árlegi bónus hefur verið bundinn í lög. Nýtt almannatryggingakerfi hefur verið innleitt með það að markmiði að gera kerfið réttlátara, skilvirkara og einfaldara.
Við höfum lagt ríka áherslu á málefni eldra fólks. Að frumkvæði Ingu Sæland, formanns Flokks fólksins, hefur verið hleypt af stað þjóðarátaki um uppbyggingu 1.500 nýrra hjúkrunarrýma um land allt og af þeim er undirbúningur eða bygging rúmlega 800 rýma þegar hafin. Þessi mikla uppbygging skiptir sköpum fyrir þúsundir fjölskyldna sem hafa beðið allt of lengi eftir öruggri og viðeigandi þjónustu fyrir sína nánustu og þar fyrir utan léttir þessi uppbygging gríðarlega á Landspítalanum.
Allt sem ég hef tíundað hér eru ekki bara lagabreytingar heldur miklar umbætur sem hafa raunveruleg áhrif á líf fólks og fjölskyldna um allt land.
Þrátt fyrir þennan mikla árangur er margt eftir ógert og ríkisstjórnin hvergi hætt. Það skiptir höfuðmáli að við gleymum aldrei hverjum við þjónum: Fólkinu í landinu en ekki kerfunum sem hlaðið hefur verið utan á undanfarna áratugi. Árum saman hafa kjör eldri borgara setið á hakanum í skjóli þess að samfélagið hefði ekki efni á að bæta kjör þeirra. Þess vegna væri ekki hægt að draga úr skerðingum. Ekki hægt að styrkja stöðu öryrkja. Ekki hægt að tryggja þjóðinni réttlátari hlut af auðlindum sínum. Ekki hægt að ráðast í þær breytingar sem fyrst og fremst kæmu öldruðum, öryrkjum og fötluðu fólki til góða. En við höfum sýnt að þegar viljinn er fyrir hendi er ekkert ómögulegt.
Virðulegur forseti. Kæru landsmenn. Við í Flokki fólksins erum stolt af verkum okkar og samstarfsflokks okkar í ríkisstjórninni. Við hlökkum til að vinna áfram í samstilltri ríkisstjórn að umbótum fyrir fólkið í landinu. Fólkið fyrst og svo allt hitt. Við stöndum á upphafspunkti mikilvægrar vegferðar. Göngum hana saman.