157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

erlend áhrif í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu.

[10:31]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Þegar hæstv. forsætisráðherra, ásamt öðrum ráðherrum, kynnti áform ríkisstjórnarinnar um að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópusambandið var hæstv. ráðherra spurður hvort hann hefði áhyggjur af hugsanlegum afskiptum erlendra aðila af kosningabaráttunni. Hæstv. ráðherra taldi sannarlega ástæðu til að hafa áhyggjur af því og taka þyrfti hart á slíku. Þá var hæstv. ráðherra spurður hvort hann hefði ekki áhyggjur af því að Evrópusambandið sjálft gæti reynt að beita sér, hafa áhrif á almenningsálitið í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar. Hæstv. ráðherrar létu eins og þeir kæmu af fjöllum með þetta. Þá lá það fyrir að Evrópusambandið hefði uppi slík áform og nú hefur það komið enn betur á daginn að Evrópusambandið ætlar sér og virðist vera byrjað að skipta sér af þjóðaratkvæðagreiðslu á Íslandi með það að markmiði að hafa áhrif á almenningsálitið. Mun hæstv. forsætisráðherra standa við það sem lofað var á þessum blaðamannafundi og taka hart á því? Er það óásættanlegt að mati hæstv. ráðherra að Evrópusambandið reyni að hlutast til um þetta, hafa áhrif á almenningsálitið hér í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar?