erlend áhrif í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu.
Frú forseti. Ég ítreka það sem ég hef sagt hér bæði fyrr í dag og fyrri daga, að auðvitað mótmælum við óeðlilegum afskiptum. Það liggur alveg fyrir. Það liggur alveg fyrir í þessu máli. Þetta er innanlandsmál. Ef fólk er hins vegar að leita svara við spurningum hjá Evrópusambandinu finnst mér ekki óeðlilegt að Evrópusambandið svari þeim spurningum. En í lok dags þá veit þjóðin sínu viti. Hún gerir sér alveg grein fyrir því um hvað þessi þjóðaratkvæðagreiðsla er. Þetta snýst um valkosti í þessu máli. Þetta snýst um hvort við eigum að hefja aðildarviðræður eða ekki. Þannig að ég hef ekkert meira um þetta mál að segja.