157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

gjaldtaka í fiskeldi.

[10:38]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Eftir Íslandsmetið sem var slegið hér um síðustu áramót með 100% sköttum á bíla og eldsneyti, eftir skattahækkun sem var gerð um síðustu áramót, þá liggur fyrir núna samkvæmt Samgöngustofu 12% samdráttur í innflutningi á bifreiðum. Skattahækkunin átti hins vegar að skila 7 milljörðum í tekjur. Það liggur auðvitað beint við að spyrja hæstv. fjármálaráðherra hvort hann telji að þessi skattahækkun muni skila sér. Ég ætlaði hins vegar að víkja að öðru sambærilegu máli sem við eigum við að etja hér núna í þinginu og það er frumvarp ríkisstjórnarinnar um lagareldi. Grein Guðmundar Fertram Sigurjónssonar vakti athygli mína í Morgunblaðinu í dag þar sem hann fer ágætlega yfir eðli frumkvöðlastarfs og uppbyggingu á nýrri atvinnugrein. Í þessu sambandi langar mig að spyrja um það að gert er ráð fyrir í frumvarpinu gjaldi á greinina óháð afkomu annars vegar og svo hagnaðargjaldi. Þetta er auðvitað hrein skattlagning á uppbyggingarstarf og atvinnusköpun sem enn þá, við verðum að hafa það í huga, er óvíst hvort nokkuð verði af. En ég er sammála því sem kemur fram í atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar, sem er nýlögð fram, um að ríkisstjórnin segist a.m.k. í orði ætla að standa á bak við þessa grein, þessa nýju fiskeldisgrein. Menn geta síðan auðvitað haft ákveðnar skoðanir og sjónarmið um uppbyggingu á henni að öðru leyti og umfangi hennar en það er alveg ljóst, held ég, að ríkisstjórnin vill standa á bak við greinina og styðja hana til að þróast áfram. Þess vegna langar mig að spyrja hæstv. fjármálaráðherra hvert framlag fiskeldis sé til fjármálaáætlunar sem við höfum nú til umræðu í þinginu til næstu fimm ára, hvert sé í rauninni framlag eldisins þar því það kemur ekki beint fram í sjálfri áætluninni. Fjármálaáætlunin var nýlega afgreidd út úr nefnd og á eftir að koma hér í síðari umræðu en mig langar að fá afstöðu hæstv. fjármálaráðherra til þess við hvaða hlutfall á nýtingu leyfa sé miðað í þessari fjármálaáætlun, en ég geng út frá og geri ráð fyrir einhverju framlagi til þessarar áætlunar. Svo langar mig líka að vita hvaða væntingar fjármálaráðherrann hefur um þessi verðmæti sem ríkið hyggst núna skattleggja með þessum nýstárlega hætti.