gjaldtaka í fiskeldi.
Forseti. Ég treysti því að ég verði varaður við þegar tíma mínum er lokið. En ég þakka hv. þm. Sigríði Andersen fyrir ljómandi góða spurningu og vil byrja á því að segja að hér er auðvitað verið að gera umtalsverðar umbætur á núverandi lagagrunni. Sú gjaldtaka sem er í gildandi lögum og sett var af síðustu ríkisstjórn er sérstök og nokkuð úr takti við þá auðlindagjaldtöku sem tíðkast hefur á Íslandi og er t.d. í eðlinu mjög frábrugðin veiðigjöldum. Veiðigjöld greiðast einungis ef afkoma er umfram, hvað eigum við að segja, ef hagnaður er umfram það sem tíðkast í íslensku atvinnulífi. En í þessari einu atvinnugrein eru lögð töluverð grunngjöld á atvinnugreinina. Þau er auðvitað verið að lækka í því frumvarpi sem liggur fyrir þinginu, úr 45 kr. í 25 kr. Það er áhugavert að bera þau síðan saman við ákvæði í lögum um veiðigjald. Nú er skemmst frá því að segja að í fjármálaáætlun er ekki sérstaklega gert ráð fyrir tekjum af þessu gjaldi nema að mjög óverulegu leyti og viðmiðin eru til þess að gera íhaldssöm miðað við áætlanir þeirra fyrirtækja sem eru starfandi í greininni. Það er auðvitað töluverð óvissa um hversu hröð þessi uppbygging verður. Tekjurnar munu hins vegar fyrst og fremst auðvitað skila sér, eins og að jafnaði gerist í íslensku atvinnulífi, í gegnum tryggingagjald og tekjuskatt þeirra einstaklinga sem vinna í atvinnugreininni sem og í gegnum hagnað og tekjur og skattlagningu af tengdri atvinnustarfsemi. Þannig að þetta gjald sem er í lögunum er óverulegur hluti af tekjum ríkisins.