157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

gjaldtaka í fiskeldi.

[10:45]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Andersen fyrir spurninguna. Nú er það auðvitað þannig líka í því frumvarpi sem liggur fyrir þinginu að rætt hefur verið um að þessum skatti á hagnað verði frestað. Ég held að það sé mjög mikilvægt að þegar atvinnugreinar byggjast upp sé þeim veitt andrými. Eftir því sem ég best veit, en nú er ég aðeins kominn út fyrir mitt fagsvið, er líka gert ráð fyrir því að þetta framleiðslugjald leggist einungis á þá framleiðslu sem fer fram í sjó og á þá að vera einhvers konar greiðsla fyrir nýtingu sameiginlegra auðlinda sem eru í fjörðum landsins og að í því sé hvati til að stytta tímann í sjó þannig að það magn af fiski sem fer niður kvína komi til frádráttar því magni sem kemur upp úr henni. Ég held að þetta sé í sjálfu sér mjög skynsamlegur hvati til að stuðla að sjálfbærri þróun í fiskeldi á Íslandi. Ég held að við þurfum samt að horfast í augu við það að einmitt þessar breytingar gera það að verkum að þessi gjaldstofn verður óverulegur. Það þýðir þá auðvitað líka (Forseti hringir.) að samanborið við þann kostnað sem fylgir fiskeldi eru þessar álögur ekki stórfenglegar samanborið við annað, eins og t.d. háan fjármagnskostnað.