forsendur fjárlaga.
Virðulegur forseti. Mig langar aðeins að eiga orðastað við hæstv. forsætisráðherra varðandi þá stöðu sem við glímum við í hv. fjárlaganefnd er viðkemur fjármálaáætlun. Ástæðan fyrir því að ég beini spurningunni til hæstv. forsætisráðherra en ekki fjármála- og efnahagsráðherra er einfaldlega sú að ég og hæstv. forsætisráðherra sátum saman á síðasta kjörtímabili í fjárlaganefnd og ég veit að hún hefur góða og yfirgripsmikla þekkingu á vinnu þeirrar nefndar. Á sínum tíma gat hún verið mjög gagnrýnin á vinnubrögð meiri hlutans á því tímabili sem var bara gott og blessað og margt mjög málefnalegt. Því langar mig að spyrja hæstv. forsætisráðherra að því hvernig það líti við henni að við séum hér með fjármálaáætlun sem gerir ráð fyrir 1,1 milljarði kr. í afgang og síðan nefndarálit meiri hluta fjárlaganefndar þar sem talin eru upp fjölmörg atriði í nefndarálitinu sem meiri hlutinn er að varpa ljósi á og viðurkenna að verði til þess að annaðhvort tekjur ríkissjóðs minnki eða útgjöld aukist.
Ég ætla að nefna hér minni sparnað vegna atvinnuleysistrygginga sem er áætlaður upp á 1,2 milljarða á næsta ári, hærra atvinnuleysi og aukin útgjöld sem geta verið 6–7 milljarðar, lægri hagvöxt og minni skatttekjur sem gætu verið á milli 5–7 milljarðar sömuleiðis og ef maður reynir að áætla afkomu án verðbólgu og vaxtaáhrifa þá gætu það verið 11–14 milljarðar. (Forseti hringir.) Það er alveg ljóst miðað við þetta að áætlunin um hallalaus fjárlög árið 2027 er brostin. (Forseti hringir.) Mig langar að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort henni finnist ekki óeðlilegt að fjármálaáætlun sé ekki uppfærð til samræmis við það.