157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

forsendur fjárlaga.

[10:49]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég tek undir það að við áttum oft ánægjulegt samstarf í hv. fjárlaganefnd. Ég hef alveg orðið vör við þessa umræðu um fjármálaáætlun og mér finnst bara fullkomlega eðlilegt að fólk sé að velta fyrir sér undirliggjandi forsendum. Þær breytingar sem voru gerðar á verklagi fjármálaáætlunar í vetur, sem ég veit að hv. þingmaður er fullkomlega meðvitaður um, snúa m.a. að spágerðinni og á hvaða tímapunkti nýjar spár koma inn. Í gegnum tíðina hefur það verið þannig að Hagstofan hefur verið sá aðili sem hefur verið að spá sérstaklega fyrir ríkið. Það hefur gert það að verkum að það kom spá sem upphaflega umræðan byggðist á og svo kom ný spá inn í miðja umræðu og það þurfti oft mjög litlar breytingar í þróun landsframleiðslu til þess að breyta gjörsamlega undirliggjandi forsendum. Ég held að við þurfum bara að vera auðmjúk gagnvart því að þannig virkar þessi spágerð. Stundum er hún til góðs, það koma meiri tekjur inn og útgjöld minnka. Stundum er hún til ills. Í gegnum tíðina hefur þetta samt oft, og ég veit að þeir sem hafa verið í svona áætlanagerð eru meðvitaðir um það, skapað óvissu á lokametrum vinnslunnar og þess vegna var tekin ákvörðun um að vera með staka spá í upphafi áætlunar og svo kemur ný spá þegar fjárlög eru útfærð. Það er vegna þess að nú er verið að styðjast við spár Seðlabankans, hann spáir ekki sérstaklega fyrir ríkissjóð heldur koma þær spár út með föstu millibili. Ég veit að þetta er svar sem er tæknilegs eðlis en þetta skiptir hins vegar máli vegna þess að það var ástæða fyrir því að þessu verklagi var breytt.

Það liggur líka fyrir að á allra næstu vikum hefst vinna, reyndar hefur aðdragandinn að henni verið í gangi, sem er svona lokahnykkurinn á fjárlagagerðinni fyrir 2027. Þetta mun allt saman koma í ljós eftir örfáar vikur og þá veit ég að það munu verða líflegar umræður hér í þingsal um hvernig þau fjárlög líta út. Ég er ekki með lokatölurnar fyrir fólk hér inni eða forseta akkúrat núna vegna þess að þetta eru það hreyfanlegar stærðir. Það geta t.d. orðið breytingar vegna verðbólgu sem geta lyft tekjum upp, það geta orðið útgjöld vegna ytri sveiflna. Það er fullt af þáttum sem geta komið inn. Ég vísa bara til þess að það verður örugglega rík og öflug umræða um fjárlög hér í haust.