forsendur fjárlaga.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir aðhaldið, mér þykir það gott. Ég verð samt að segja: Fjármálaáætlun er ekki röng. Fjármálaáætlun er rétt miðað við þær forsendur sem hún byggir á. Það er ekki komið uppfært mat varðandi tekjur ríkissjóðs. Það er ekki hægt að fullyrða hér að ef það verður breyting á útgjöldum þá verði ekki önnur breyting á tekjum. Það liggur alveg fyrir að þetta eru stærðir sem eru flæðandi hvað það varðar. Það er alveg skýrt að þau markmið sem var farið af stað með voru að það væri spá í upphafi tímabils og svo kemur önnur spá þegar útfærslan er í fjárlögunum. Þannig að við höfum fylgt því verklagi.
Ég vil að lokum segja: Það er pólitísk áhersla þessarar ríkisstjórnar að skila hallalausum fjárlögum 2027. Við munum skila hallalausum fjárlögum 2027 sama hvað það kostar og við ætlum að standa við það markmið. Ef verða breytingar þar á þá munum við þurfa að útfæra það. En við höfum fylgt öllum þeim forsendum sem við lögðum upp með í þessari fjármálaáætlunarvinnu og við hvikum hvergi frá því.