endurákvörðun virðisaukaskatts á bílaleigur.
Virðulegur forseti. Það er mikið verið að ræða fjármálin og skattheimtu hér í morgunsárið hjá þingheimi. Manni finnst á köflum að sífellt sé verið að leita nýrra leiða til að seilast ofan í vasa fyrirtækja, heimila og einstaklinga. Ég vakti athygli á því fyrr í vikunni að nú er dálítið sérstök deila komin upp í þessu tilviki milli bílaleigufyrirtækja og skattyfirvalda þar sem verið er að túlka skattalöggjöfina á nýjan hátt og krefja bílaleigur í landinu um afturvirkar greiðslur svo hundruðum milljóna nemur í einstaka tilvikum. Ég tók dæmi af bílaleigu sem hefur fengið endurákvörðun um virðisaukaskatt upp á rúmar 700 millj. kr., auk álags og dráttarvaxta, fyrir árin 2024 og 2025. Við getum öll ímyndað okkur hvaða áhrif slíkur bakreikningur hefur á rekstur meðalfyrirtækis. Þetta er komið til vegna þess að bílaleigufyrirtæki fengu leiðbeiningar á sínum tíma, fyrir níu árum, um að þeim væri heimilt að selja valkvæðar tryggingar til sinna viðskiptavina. Þú tekur bílaleigubíl og getur valið hvort þú tryggir hann eða ekki. Í leiðbeiningum til rekstraraðila ári síðar var fullyrt að bílaleigufyrirtækjum væri þetta heimilt og tveimur árum síðar var það svo áréttað í lögum. En nú er þessi bakreikningur að koma og það eru upplýsingar um að ekki sé um að ræða þetta eina fyrirtæki sem ég vitnaði til og tók dæmi af hér um daginn heldur séu fleiri að fá slíka reikninga.
Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann sé meðvitaður um þetta mál (Forseti hringir.) og hvort ráðuneytið hafi gert sér grein fyrir þeim afleiðingum sem þetta kann að hafa á þessi fyrirtæki, á störf þar og á ferðaþjónustuna í heild sinni.