endurákvörðun virðisaukaskatts á bílaleigur.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur fyrir að vekja athygli á þessu máli. Það er alveg rétt sem fram kom í máli hennar að hér er um töluvert mikla breytingu á túlkun að ræða. Það hefur verið vakin athygli mín á henni og við höfum fylgst með framþróun þessa máls. Það er auðvitað þannig að Skatturinn vinnur sjálfstætt og það er auðvitað þannig að þrátt fyrir að Alþingi vandi mjög vinnu sína að jafnaði þá koma upp vafaatriði sem þýðir að frekari útfærsla fer oft fram í túlkun yfirskattanefndar og jafnvel dómstóla. Þarna er tvímælalaust um vafaatriði að ræða og ekki óeðlilegt að það fari þá í þann farveg sem svona frekari skýringar að jafnaði fara í. Það sem er óvenjulegt þarna er hversu langt tímabil er undir og hversu háar upphæðirnar eru þar af leiðandi. Það gerir það auðvitað að verkum að þetta getur haft veruleg áhrif á einstök fyrirtæki og ég tek undir með hv. þingmanni að það er áhyggjuefni.