157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

endurákvörðun virðisaukaskatts á bílaleigur.

[11:06]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra andsvarið. Það er gott að heyra að hann hafi áhyggjur af þessu. Hann nefnir hér að Skatturinn vinni sjálfstætt og ég vænti þess að ráðherrann muni fara yfir þetta með skattyfirvöldum. Ég myndi kannski vilja fá það aðeins skýrar fram hvort hann hafi það miklar áhyggjur af þessu, eins og komið hafa fram í samfélaginu núna allra síðustu daga, að hann muni beita sér fyrir því að meðalhóf verði tryggt og stuðla þar með að málefnalegri lausn mála áður en allt fer á annan endann í þessum bransa, ef svo má segja, og í ferðaþjónustunni enn fremur. Nóg er nú samt komið. Þarna eru hundruð starfa undir. Ég myndi vilja fá það aðeins skýrar fram hvort hann ætli að beita sér fyrir því að þetta endi ekki svona.

Líka fannst mér það svo áhugavert (Forseti hringir.) sem var verið að spyrja út í áðan hjá öðrum hv. þingmanni, Sigríði Á. Andersen, varðandi lagareldið og skattana þar. (Forseti hringir.) Hefur hann ekki áhyggjur af því að það myndi hafa letjandi áhrif á þá sem mögulega myndu vilja koma að fjárfestingum á þessum svæðum og í þessari grein?

Þetta eru sem sagt þessar tvær fyrirspurnir núna í endann sem ég myndi vilja fá skýr svör við.