samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir andsvarið. Þessi útfösun er mikið áhyggjuefni og ég var einmitt með hugleiðingar hérna áðan og spurningar og vissi svo sem ekki alveg hvernig væri staðið að þessari ákvörðun, hvort hún væri bara fjarskiptafyrirtækjanna. En hér fékk ég það fram að samkvæmt svörum frá ráðherra, eins og hv. þm. Ingibjörg Davíðsdóttir fór inn á, verði þetta lagað sem sagt á þessu kjörtímabili en að þetta sé viðskiptalegs eðlis mögulega, þær hugleiðingar. Ég vona bara innilega ekki. Mér finnst það ábyrgðarhluti og mér finnst að þessi útfösun geti ekki farið fram þegar innleiðing á 4G og 5G hefur ekki farið almennilega fram því að við viljum bara alls ekki að það séu svæði hér þar sem fólk getur ekki hringt í 112. Við vitum ekkert, við teljum okkur heil heilsu en svo bara allt í einu gerist eitthvað, kannski einmitt í dreifbýli, bara heima hjá fólki þar sem er sambandslaust. Ég hef nú sjálf lent í því á miðri Öxi, var að keyra þar og var á nýlegum bíl en það var eitthvað sem gerðist og ég var bara á dauðu svæði. Ég þurfti að bíða af mér tímann og fá aðstoð við að komast í samband til þess að hringja. Þetta var á Öxi, þetta er líka í Fagradal og þetta er víða. En ég sé það einmitt í nefndarálitinu að meiri hlutinn hefur áhyggjur af þessu. Þetta er einna verst einmitt á Vestfjörðum, sýnist mér. Ég tel að þetta sé það alvarlegt að það verði að bregðast við og flýta því að þetta verði lagað, ja, fyrr en 2028.