157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[13:31]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Berglindi Hörpu Svavarsdóttur fyrir svörin og ég heyri að við deilum þessum áhyggjum. Mig langar að halda aðeins áfram með farnetsþjónustumálin. Það hefur verið ákveðin umræða, alla vega úti í samfélaginu, að það ætti að skilgreina farnetsþjónustu sem hluta af grunnsamgönguinnviðum og ekki eingöngu á stofnvegum heldur einnig á lykilleiðum sem tengja byggð og þjónustu. Ég er þeirrar skoðunar að svona ætti að skilgreina farnetsþjónustuna vegna þess að mér finnst stundum að menn sem fara sjaldan út fyrir höfuðborgarsvæðið átti sig ekki á því hvað um er að ræða, að úti á landi þá bara náum við ekki sambandi og það er ekkert síður mikilvægt þar. Þetta er öryggisatriði. Það er ekki hægt að hlaupa þar á milli húsa alltaf ef eitthvað er, það þarf að vera hægt að ná sambandi. Mig langar að heyra aðeins ofan í þingmanninn, hvort hún sé sammála mér í því að það sé æskilegt að farnetsþjónusta verði skilgreind sem hluti af grunnsamgönguinnviðum og þá ekki eingöngu á stofnvegum heldur einnig á lykilleiðum sem tengja byggð og þjónustu. Þá er ég sérstaklega hvað þetta varðar að huga að landsbyggðinni sem mér finnst að fleiri mættu huga að hér í þessum þingsal.

Þar sem ég á ekki mikinn tíma eftir ætla ég aðeins að fara í jarðgangamálin vegna þess að ég veit að þingmaðurinn tilheyrir kjördæmi sem er ekki alls kostar sátt við nýja forgangsröðun ráðherrans, þó svo að ég viti að allir átti sig á því að Fljótagöng séu líka mikilvæg. En mig langar að heyra ofan í þingmanninn, af því að ráðherrann hefur verið með miklar yfirlýsingar um að það verði byrjað að bora Fljótagöngin á næsta ári: Telur þingmaðurinn það raunhæft?