samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir seinna andsvarið og mér finnst þetta ótrúlega góðar hugleiðingar. Fyrri spurningin varðandi skilgreiningu á þessari farnetsþjónustu, að hún verði hluti af grunnsamgönguinnviðum — ég hélt að það væri bara þannig. Ég trúi ekki að það sé ekki á þann hátt, af því að þetta er svo mikið öryggisatriði og svo mikilvægt. Þess vegna held ég að við gleymum okkur, almenningur, mætum bara til vinnu og erum með símann og svo bara gerist þetta, það er mjög víða að fólk nær ekki símasambandi heima hjá sér. Á Austurlandi og sérstaklega í Múlaþingi, sem var áður Fljótsdalshérað, er gríðarlega dreifbýlt og við erum næstlandstærsta sveitarfélag landsins þannig að umfangið er þannig að við finnum mikið fyrir þessu. Fólki eiginlega bara bregður, að við séum á árinu 2026 í þeim sporum að fólk hafi ekki góð fjarskipti.
En nú líður tíminn og ég ætla líka svo sem að tala um jarðgangamál, ég er alltaf til í að ræða þau. Ég veit að það er mikil þörf á jarðgöngum um allt land, enda höfum við talað um að vera helst að bora tvenn göng í einu og það hefur aldrei verið eins langt jarðgangastopp og hefur verið núna. En ég hef enga trú á því að það verði byrjað að bora á næsta ári eða þarnæsta liggur við. Það tekur tíma að rannsaka og hanna. Mér finnst bara svo mikil óvirðing í því þegar heilt byggðarsamfélag er búið að ganga í gegnum skriður, lenda í því, og þurfa frá að hverfa — að það verkefni sé sett til hliðar og eitthvert annað verkefni sett framar.