samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Í þessu innleggi mínu langar mig að fjalla um sjóvarnir. Ég hafði ætlað að fara svona aðeins um, ég kem úr kjördæmi sem er skipt upp í þrjá hluta, Vesturland, Vestfirði og Norðvesturland, og ég ætlaði að taka kjördæmið fyrir eftir hlutum og byrja á Vesturlandi. En ég ætla að venda mínu kvæði í kross. Síðast fjallaði ég, að mig minnir, um farnetssambandið og nú langar mig að fara í sjóvarnirnar.
Það eru mjög margir sem sendu inn umsagnir og komu á fundi umhverfis- og samgöngunefndar, sem kölluðu eftir aukinni athygli, fjármunum og forvörnum gegn sjávarflóðum. Það er ekki til heildstætt áhættumat á hættu á sjávarflóðum við strendur Íslands en núverandi fyrirkomulag felur sveitarfélögum að sækja um ríkisframlag vegna byggingu sjóvarna. Vegagerðin forgangsraðar umsóknum og gerir tillögu að verkefnum á samgönguáætlun og svo greiðir ríkissjóður allt að sjö áttundu hluta kostnaðar þeirra sjóvarnaframkvæmda sem eru á framkvæmdaáætlun samþykktrar samgönguáætlunar. Viðkomandi sveitarfélag eða landeigandi greiðir síðan það sem eftir stendur. Byggð svæði sem standa á manngerðum fyllingum njóta ekki ríkisframlags, enda eiga sjóvarnir þar að vera hluti af byggingu fyllingarinnar sem lóðagjöld og aðrir tekjustofnar eiga að standa undir.
Fjölmörg sveitarfélög sem komu á fund umhverfis- og samgöngunefndar vöktu einmitt athygli á þessum vanda sem hefur í rauninni stækkað líkt og farnetsþjónustuvandamálin sem hafa skapast með uppfærslu úr 2G og 3G yfir í 4G og 5G. Það eru hins vegar ekki allir sem setja þessi vandamál í umsagnirnar og síðan þegar farið er að spyrja gesti á fundum nefnda koma oft stærri vandamál fram. Þau birtast ekki alltaf í umsögnunum. Það sama gildir með sjóvarnirnar.
Mig langar að taka sem dæmi eitt sveitarfélag sem hefur þungar áhyggjur af því hvernig sjórinn er að brjóta land sem hefur skapað mikinn vanda. Ég ætla að grípa niður í umsögn frá Akranesi, með leyfi forseta: „Fyrir íbúabyggð á Akranesi skiptir verulegu máli að tryggja fjármuni til bygginga og viðhalds sjóvarna. Tímasettar framkvæmdir sem eru í framlagðri áætlun er mikilvægt að verði að veruleika. Akraneskaupstaður er eitt af þeim sveitarfélögum sem á verulega undir því að framkvæmdir við sjóvarnir séu vel fjármagnaðar og áætlaðar framkvæmdir verði að veruleika.
Á Akranesi brotnar stöðugt af landi. Þrátt fyrir sjóvarnir hefur nýlega orðið tjón vegna ágangs sjávar. Vegagerðin hefur sýnt þeim veikleikum í sjóvörnum sem hafa komið fram góðan skilning og framkvæmdir á endurbótum eru hafnar.“
Síðan kemur fram: „Litlu mátti muna að slys yrðu á fólki og eignatjón er verulegt. Það undirstrikar mikilvægi þess að framkvæmdir og framkvæmdageta við sjóvarnir sé öflug og skilvirk.“
Síðan er verið að fjalla sérstaklega um ákveðna þætti á Akranesi sem ég ætla ekki að fara nákvæmlega út í hérna. Hvatningin frá Akraneskaupstað er þessi; að það verði að huga miklu betur að sjóvörnum í öllum áætlunum.