samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég ætla að halda áfram að beina sjónum mínum að Reykjavík og veita þessari umræðu inn til Reykjavíkur og þeirra framkvæmda sem eru fyrirhugaðar eða gefinn ádráttur um í þingsályktunartillögunni í Reykjavík. Ég hef nefnt það í tengslum við þetta innviðafélag sem verið er að ræða hérna nokkuð samhliða samgönguáætluninni, sitt sýnist hverjum um það fyrirkomulag, að ég er í sjálfu sér alveg jákvæð í garð innviðafélagsins sem ég lít á sem nokkurs konar nýtt tól til að hraða framkvæmdum hér á landinu, vonandi ekki bara á höfuðborgarsvæðinu heldur líka úti á landi. En þó er það þannig að menn horfa nú kannski helst til höfuðborgarsvæðisins í þeim efnum og kannski innviðafélagið sjálft og þeir sem véla um það vegna þess að þar liggja auðvitað fyrir framkvæmdir sem eru, eins og það er kallað í þessum bransa, hagkvæmar framkvæmdir, þ.e. menn eygja einhverja von um að geta farið í stórkostlegar samgönguframkvæmdir á þeim forsendum að hægt sé að hafa af þeim framkvæmdum einhverjar tekjur en ekki bara skuldir til framtíðar eða að það þurfi að fjármagna þær með beinu fé úr ríkissjóði. Upp að ákveðnu marki er það í sjálfu sér sársaukalaust af minni hálfu og ætti að vera af allra hálfu. Þó er það þannig að þessi umræða um þetta innviðafélag horfir svolítið öðruvísi við Reykvíkingum en kannski öðrum landsmönnum í þessu sambandi af því að hér er um að ræða framkvæmdir, sérstaklega í Reykjavík, sem áform eru um að hefja gjaldtöku á. Þetta eru vegasamgöngur sem Reykvíkingar myndu nýta jafnvel mörgum sinnum á dag, ólíkt kannski jarðgöngum úti á landi — vissulega hafa menn samúð með því að þau eru nauðsynleg úti á landi, víðast til að halda tengingu milli byggða og samfélaga — en þau eru kannski ekki jafn fjölfarin eða jafn mikið nýtt af einstökum íbúum þeirra svæða sem búa við þau göng eins og menn sjá kannski fyrir sér í Reykjavík, t.d. bara Miklubrautina í Reykjavík sem er svona meginlífæð, umferðaræð höfuðborgarsvæðisins alls en liggur alfarið í Reykjavík.
Ég fyrir mitt leyti geld varhuga við hugmynd um gjaldtöku, a.m.k. að það sé einhver opinn tékki til innviðafélags fyrir gjaldtöku fyrir framkvæmdir sem þessar. Menn hafa auðvitað greitt skatta hér á landi í þeim tilgangi, jú, og með það að markmiði að byggja upp innviði. Bifreiðaeigendur bera miklar skattbyrðar og það er rétt að rifja það upp að núna um áramótin voru álögur á bifreiðaeigendur hækkaðar svo mjög að nú hefur náðst Íslandsmet í skattlagningu og það fyrirfinnst í skattlagningu á bifreiðaeigendur þar sem núna um stundir er 100% skattur á bifreiðar og eldsneyti. Þessi skattahækkun ein og sér átti að skila 7 milljörðum í skatttekjur um áramótin, auknu fé í ríkissjóð, og það var nefnt að það ætti einmitt að fara í innviðauppbyggingu, í vegasamgöngur til að mæta brýnni þörf. Og þá hlýtur maður að spyrja: Hvað ætli bifreiðaeigendur þurfi að láta af hendi rakna mikið fé í ríkissjóð í formi skatta og hvað ætli sé síðan mikið fé sem ríkissjóður lætur raunverulega í vegasamgöngur úr þessum ríkissjóði sem bifreiðaeigendur láta renna í?
Það er auðvelt að svara því. Fyrir skattahækkunina um áramótin voru útgjöld ríkisins til vegamála 46 milljarðar og engin áform í fjármálaáætlun að þau myndu aukast eitthvað verulega. 46 milljarðar sem fara úr ríkissjóði í vegasamgöngur. En tekjur ríkisins úr vasa hins venjulega bíleiganda eru 78 milljarðar. Þetta eru tölurnar sem mér finnst skipta meginmáli þegar verið er að ræða innviðauppbyggingu, vegaframkvæmdir og samgöngur. Því verður ekki með málefnalegum hætti haldið fram að hægt sé að leggja frekari byrðar á bifreiðaeigendur til að fjármagna samgöngur. Því hefur aldrei verið svarað hér í þingsal, hvorki af þessari ríkisstjórn né heldur ríkisstjórnum sem á undan hafa farið: Af hverju gengur svona illa að láta þetta fé sem bifreiðaeigendur þurfa að skila í ríkissjóð, þessa 78 milljörðum sem nú eru orðnir yfir 80 milljarðar með þessari verulegu skattahækkun sem var um áramótin, renna til vegasamgangna?
Hér áður fyrr voru þetta markaðir tekjustofnar. Það var hreinlega óheimilt að láta skatt af bensíni og bifreiðum renna í annað, sérstaklega bensíni og dísilolíu, þ.e. eldsneytinu, renna í eitthvað annað en vegasamgöngur. Þetta voru markaðir tekjustofnar. Svo var tekin sérstök ákvörðun um að kippa þeirri reglu úr sambandi eins og svo mörgu reyndar öðru í ríkisfjármálunum með lögum um opinber fjármál sem hefur helst haft það í för með sér að fjárveitingavaldið, sem situr hér í þessum sal, er í rauninni orðið bara áhorfandi að ríkisfjármálum almennt. Ákvarðanirnar eru teknar alltaf lengra og lengra í burtu frá fjárveitingavaldinu, upp í fjármálaráðuneyti af embættismönnum sem þar eru og véla um einhver excel-skjöl og koma svo og kynna þau hér og fá stimpil hérna á Alþingi. Núna á að taka þetta ákvörðunarvald enn fjær fjárveitingavaldinu og í rauninni líka frá fjármálaráðuneytinu og inn í innviðafélag sem á að vera veitt einhvers konar sjálfdæmi um það í hvaða framkvæmdir verði farið og meta það og forgangsraða eftir því hvað er hagkvæmt og hvað er ekki hagkvæmt. Þannig að okkur sem hér sitjum á þingi, í þessum sal, er alltaf þrengri stakkur sniðinn þegar kemur að einhverri stefnumótun í þessum efnum. Það er auðvitað mjög miður. Meira að segja er það síðan þannig þegar litið er sérstaklega til Reykjavíkur, nú tala ég bara út frá hagsmunum Reykvíkinga, að þingmenn Reykvíkinga virðast hafa enn minni völd en þingmenn annarra kjördæma því að við höfum horft upp á það síðustu tíu árin að algjörlega án nokkurs samráðs við þingmenn Reykvíkinga hefur ríkisstjórnin gert samkomulag við borgaryfirvöld um einhverja uppbyggingu í samgöngumálum í Reykjavík, alfarið farið fram hjá þingmönnum Reykjavíkur, án nokkurs samráðs við þingmenn Reykjavíkur. Það er mjög miður. Það er vísað til þessa samkomulags um höfuðborgarsáttmálann í þessari þingsályktunartillögu og það er meira að segja líka reynt að fela Reykjavík í því samkomulagi af því að það er vísað til alls höfuðborgarsvæðisins. En hagsmunir Reykvíkinga eru í mörgu tilliti, auðvitað ekki öllu en í mörgu tilliti, allt aðrir heldur en hagsmunir Hafnfirðinga eða Kópavogsbúa eða Garðbæinga. Menn verða bara að horfast í augu við það. Það er til skammar hvernig borgarfulltrúar Reykjavíkur hafa litið fram hjá allri þeirri hagsmunagæslu sem þeim hefði borið að hafa í frammi, (Forseti hringir.) bæði gagnvart ríkisvaldinu og gagnvart öðrum sveitarfélögum í nágrenni Reykjavíkur.