samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir hennar ljómandi góðu ræðu. Ef ég skildi hv. þingmann rétt eru skattar af ökutækjaeigendum í dag um 78 milljarðar á ári og þá veltir maður því fyrir sér að í svokallaðri framkvæmdaáætlun þessarar samgönguáætlunar, sem eru fyrstu fimm árin, eru það um 362 milljarðar og ef því er deilt niður eru það 72,3 milljarðar á ári. Það eru sem sagt 72,3 milljarðar á ári sem er verið að eyða í samgöngumál, 72. Það er verið að taka meiri skatta af ökutækjaeigendum en sem nemur því sem fer í samgöngumál. Og nú á að vera eitthvert hókus-pókus, að kannski, mögulega, ef Kjalarnesvegur fer inn í innviðafélagið komi auka 6,3 milljarðar og þá komi alls konar framkvæmdir líka, en bara ef Kjalarnesvegurinn fer inn í innviðafélagið. Samt er búið að dagsetja þetta á næsta ári, þrátt fyrir að við vitum að Kjalarnesvegur er ekkert að komast inn á næsta ári.
Mig langar að spyrja hv. þingmann: Hvenær heldur hv. þingmaður, og mögulega er það farið að gerast, að öll þessi skattasýki á ökutæki og samgöngur fari raunverulega að hafa þau áhrif að hún fari að breyta ferðamynstri fólks, neysluhegðun og öðru? Vinstri menn brenna sig alltaf á því að þeir átta sig ekki á því að það er ekki bein lína á milli þess að hækka skattinn og að sá peningur komi í kassann. Það er hin blessaða Laffer-kúrfa sem sýnir það mjög glögglega að ef þú ferð yfir ákveðin mörk þá færðu minna í kassann eftir því sem þú hækkar skattana. Er ekki komið nóg?