157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[13:56]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta er ágæt hugleiðing hjá hv. þingmanni. Nú er það þannig t.d. að um áramótin voru vörugjöld á bifreiðar hækkuð mjög verulega og það átti að skila auka 7 milljörðum í ríkiskassann. Það er dágóður peningur, 7 milljarðar. Nú hefur komið í ljós, a.m.k. miðað við tölur Samgöngustofu sem ég kíkti á í morgun, að samdráttur í innflutningi eða nýskráningum á bifreiðum er 12%. Það eru 12% færri nýskráningar það sem af er þessu ári, en voru á sama tíma í fyrra. Þetta sýnir auðvitað að þessi neyslustýring, af því að þetta er ekki bara skattagleði — þetta er fyrst og fremst skattagleði en menn reyna síðan að klæða það í búning einhverrar stefnu um að menn eigi að kaupa svona bíla en ekki hinsegin og svoleiðis — hefur haft það í för með sér annars vegar að fólk getur ekki keypt þann bíl sem það langar til og þarf að kaupa, af því að í þessum sköttum felst ákveðin neyslustýring. Svo sýnir það líka að ríkið fær ekki einu sinni þetta fé sem ríkissjóð langar að fá. Ég hef ekki fengið svör við því, ég spurði hæstv. fjármálaráðherra að þessu í fyrirspurnatíma í morgun en var að spyrja um annað í leiðinni þannig að honum gafst ekki tækifæri til að svara þessu, en ég velti því fyrir mér í ljósi fjármálaáætlunar, sem er ekki komin til seinni umræðu hér en fer von bráðar að koma til umræðu, hvort fjármálaáætlun geri ráð fyrir þessum tekjum og hvort hún standist í ljósi þess að það liggur við að tekjustofninn er ekki fyrir hendi miðað við tölur varðandi nýskráningar bifreiða.