157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:03]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er gaman að einhver hefur áhuga á sjónarmiðum þingmanna Reykjavíkur um forgangsröðun samgöngumannvirkja hér. Ég hef nefnt það að Reykjavík, bara lega landsins, lega Reykjavíkur, er þannig að við erum auðvitað á nesi, þetta er eitt stórt nes. Hv. þingmaður getur rætt það við fólkið sem býr hér norðvestast, á Seltjarnarnesi, sem hefur miklar áhyggjur einmitt af flóttaleiðum. Það hefur ítrekað núna, trekk í trekk, verið þrengt að umferð sem gengur vestur–austur meðfram okkar litla skaga hérna sem Reykjavík byggir á. Það er auðvitað forgangsatriði að bæta umferðarflæði. Þessar hugmyndir sem nefndar eru í samgönguáætlun gera það fæstar. Það að setja Miklubraut í stokk fjölgar ekki umferðaræðum. Það er nefnt hér í samgönguáætlun að gert sé ráð fyrir 300 milljörðum í þessar samgöngur þegar mér finnst blasa við að hægt sé að bæta umferðarflæði og umferðaröryggi með miklum mun hagkvæmari hætti, sem sagt með ódýrari aðgerðum sem myndu skila árangri í fyrsta lagi miklu fyrr og miklu meiri árangri en þær framkvæmdir sem nefndar eru í samgönguáætlun. Ég nefni mislæg gatnamót á Miklubrautinni, þrenn mislæg gatnamót við Kringlumýrarbraut og Grensásveg og jafnvel Lönguhlíð líka. Og þá er ég ekki að tala um einhverjar miklar slaufur heldur bara það að færa gatnamótin í stokk með útgengið í allar áttir. Þetta er hægt að gera með miklum mun hagkvæmari hætti sem myndi bæta umferðaröryggi, sem er mjög brýnt, og flóttaleiðir, eins og hv. þingmaður nefnir.