samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka tækifærið til að fá að bæta aðeins við fyrra svar mitt við andsvari hv. þingmanns af því að ég náði ekki að koma því að. Það sem mér finnst líka hvíla þungt á Reykvíkingum er að það þarf að fjölga umferðaræðunum og einmitt flóttaleiðum út úr bænum, þ.e. að bæta við æðum sem ekki liggja bara austur–vestur, af því að við höfum Miklubrautina í þeim tilgangi, heldur að bæta við leiðum, hvað á maður að segja, vestur–norður og vestur–suður. Sundabrautin er eitt dæmi um það þar sem væri verið að búa til og bæta við nýrri æð sem léttir þá á öðrum líka en er líka ákveðið öryggistæki, hvort sem það yrði brú eða jarðgöng. Ég ætla ekki að fara út í þær tæknilegu forsendur og svona. En það er brýnt að það verði farið í þessar framkvæmdir. Ég er í sjálfu sér kannski ekki mótfallin gjaldtöku við nýjar framkvæmdir en það þarf auðvitað að stilla henni í hóf og það er ekki gert t.d. í frumvarpi um innviðafélagið. Þar er engin hámarksheimild til gjaldtöku og það þurfum við að laga hérna í þessum sal.