157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:10]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa hugmynd í rauninni. Ég held að það væri margt vitlausara en að leita eftir afstöðu Reykvíkinga til þessarar uppbyggingar og framkvæmda í vegamálum í Reykjavík. Ég held að skoðanakönnun um t.d. afstöðu til gjaldtöku, hvort menn vilji fá Miklubrautina í stokk og kannski með tilheyrandi gjaldtöku, Miklubrautina í göng með tilheyrandi gjaldtöku, væri brýnni heldur en sú skoðanakönnun sem menn eru að fara að láta gera hér 29. ágúst um hvort menn vilji hefja aðildarviðræður að Evrópusambandinu án þess að vilja fara inn í Evrópusambandið. Það væri margt vitlausara en að kalla eftir afstöðu Reykvíkinga. Auðvitað eru Reykvíkingar, eins og aðrir landsmenn, langþreyttir á ástandinu. Lengi má manninn reyna en menn gefast samt upp á endanum. En ef það þarf að borga eitthvað meira þá borgum við meira af því að fólk þarf að komast ferða sinna. Það liggur alveg fyrir. Við höfum eytt stórfelldu fé, auknu fé í almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu með milljarða framlagi árlega í áratug án þess að sjá nokkurn mun eða nokkra aukningu þegar kemur að hlutfalli ferða sem farnar eru með almenningssamgöngum þannig að það er að mínu mati svolítið fullreynt að reyna að fá einhvern þorra Reykvíkinga í almenningssamgöngur. Ég styð almenningssamgöngur og ég held að það sé margt hægt að bæta í því en ekki með þeim hætti að það sé eðlilegt að stofna til 300 milljarða útgjalda til að koma á einhverju nýju kerfi almenningssamgangna þegar nýtingin er ekki meiri en raun ber vitni.