157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:12]
Horfa

Berglind Harpa Svavarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu og svör. Þetta er mjög áhugavert af því að manni finnst, eins og með lausnir í samgöngumálum og hvort það sé innviðafélag eða annað, oft verða, hvað á maður segja, eitthvert tengslarof. Það eru íbúar sem eru þarna úti að keyra en einhver annar sem tekur ákvarðanirnar, að íbúar og þeir sem keyra um í umferðinni finni að þeir geti einhvern veginn haft áhrif. Hv. þingmaður kom líka inn á áðan tillögu að mikilvægum flóttaleiðum, sem eru hagkvæmar og ódýrar og góðar lausnir, og þá veltir maður fyrir sér: Hefur það ekki verið skoðað? Það er svo oft sem það koma einhverjir valkostir sem eru ekkert góðir, eru bara dýrir og sem er einhvern veginn ekki rýnt nógu vel í og farið vel með fé. Það er bæði skattheimtan og þeir skattar sem við fáum, að við vinnum vel með það fé sem við erum með.

Varðandi innviðafélagið, ef það fer nú á fullt í þessi verkefni og það verður gjaldskylda, þá er komin hérna tafla í nefndarálitinu um tillögur að forgangsverkefnum. Ég vitnaði í mitt kjördæmi áðan varðandi hvað væri þarna inni og hverju ætti að flýta en svo fór ég að rýna í höfuðborgarsvæðið og það er ansi lítið þar. Það er bara undirbúningur að samgöngumiðstöð Reykjavíkur, einhver valkostagreining og undirgöng. Ég ætlaði bara að athuga hvernig þér líst á þessa töflu með tilliti til hags höfuðborgarbúa, hvað þeir fá í staðinn.