157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:17]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér samgönguáætlun. Vegna þeirrar umræðu sem var hér rétt á undan mér þá finnst mér rétt að taka það fram að mér finnst mjög mikilvægt að ráðist verði í samgöngubætur hér á höfuðborgarsvæðinu og það sem allra fyrst. Ég vona að einhver endurskoðun á samgöngusáttmála tefji ekki þær framkvæmdir því það er sko kominn tími til að ráðast í þær framkvæmdir sem þarf að fara í á höfuðborgarsvæðinu.

Virðulegur forseti. Ég ætlaði nú í þessari þriðju ræðu minni að fara aðeins heildstætt yfir það hvað við erum með á dagskrá hér í dag. Við erum með á dagskrá samgönguáætlun sem við ræðum nú. Þetta er mín þriðja ræða og við höfum talað um áætlunina í svolítinn tíma, enda eru samgöngur gríðarlega mikilvægt mál fyrir alla Íslendinga. Þessi ríkisstjórn kom fram með ofboðslega stór og mikil loforð um allt sem gera átti í samgöngumálum. Ræsum vélarnar, byrjum aftur. Hér var fyrri ríkisstjórn kennt um að hafa gert lítið sem ekkert.

En hvað er að frétta í þessari samgönguáætlun? Það er bara rosalega lítið að frétta. Það sem er að frétta er að það er þó búið að taka framkvæmdir sem voru tilbúnar, talandi um jarðgöng fyrir austan, og færa yfir á Fljótagöng sem eru ekki einu sinni tilbúin. Það er ekkert hægt að byrja að bora Fljótagöng. Það er ekki eins og það sé verið að ræsa neina bora, það er bara verið að ræsa einhverjar verkfræðistofur í að fara að hanna, teikna og gera eitthvað. Það er það eina sem verið er að gera.

Ef við lítum aðeins meira á dagskrána þá er í samgönguáætlun, sem er einhvers konar óskalisti um það sem þessi ríkisstjórn vill gera í samgöngumálum, margt mjög gott og margt sem við getum algerlega sameinast um en hún er ekki fjármögnuð. En næsta mál á dagskrá hér er innviðafélag. Það er það sem þessi ríkisstjórn hefur haldið fram, að hún fjármagni samgönguáætlun með því að búa til nýtt félag.

Virðulegur forseti. Það ættu allir að gera sér grein fyrir því að þú fjármagnar ekki eitthvað bara með því að búa til nýja kennitölu. Það er bara ekki hægt. Er ég talsmaður þess að einkaaðilar séu teknir að borðinu þegar kemur að því að byggja upp mikilvæga innviði? Já, svo sannarlega. Ég held t.d. að við gætum farið í Sundabraut með því að fá lífeyrissjóði og aðra fagaðila til að koma og framkvæma með okkur og fjárfesta og svo megi rukka veggjöld. Hugmyndin um innviðafélag er ekki slæm, alls ekki, en hún fjármagnar ekkert samgönguáætlun. Það stendur skýrt í þessum plöggum hér að það á að fara í einhver Fljótagöng og verið að lofa að það eigi að vera hægt að byrja á næsta ári, sem allir vita að er algerlega óraunhæft. Það stendur líka skýrt að það að stofna innviðafélag per se mun ekkert geta ýtt þeirri framkvæmd af stað því ríkið mun þurfa að koma með fjármuni í það verkefni. Einkaaðilar munu ekki sjá hag sinn í því að byggja Fljótagöng því að taka gjald fyrir að keyra í gegnum þau mun aldrei fjármagna það. Ríkið mun þurfa að koma inn en þeir peningar eru ekki til staðar.

Virðulegur forseti. Þá kemur hér svo að 4. liðnum á þessum fundi og það er fjármálaáætlunin. Hvað segir fjármálaáætlunin okkar? Er þar verið að setja alvörufjármagn í samgöngumál? Nei, á þessu tímabili, í þessari fjármálaáætlun, er dregið úr framlögum til samgöngumála. Munum samt yfirlýsingarnar sem hér voru. Það átti að ræsa vélarnar, fara af stað í einhver rosaleg verkefni sem ekki höfðu sést lengi. En fjármagnið er ekki til staðar í þetta.

Virðulegur forseti. Ég geri verulegar athugasemdir við það að fjármálaáætlun sé sett á dagskrá því að ég held að hún sé ótæk til síðari umræðu. Það er algerlega ljóst að allar forsendur fjármálaáætlunar eru brostnar og það sem nefndarálit meiri hlutans segir er að það skipti þau ekki máli, þau ætli ekki að gera neitt. Ég geri athugasemdir við það að forseti skuli setja þetta mál á dagskrá því að ég held að það sé ótækt til umræðu.

Virðulegur forseti. Ég er að fara hér yfir þetta vegna þess að þessi mál tengjast. Það er alveg hægt að ræða óskalista ríkisstjórnarinnar um samgönguframkvæmdir en það er ekki hægt að ræða það undir þeim formerkjum sem ríkisstjórnarflokkarnir hafa kynnt, að hér sé um fjármagnaða samgönguáætlun að ræða, því það er svo sannarlega ekki staðan. Það er í rauninni illa farið með fólk víða um land þar sem búið er að lofa einhverjum framkvæmdum. Eins og til að mynda Fljótagöng; ég veit að fólkið þar fylgist með þessari umræðu, fylgist með því hvort þingið ætli ekki örugglega að samþykkja þessa samgönguáætlun vegna þess að það stendur í þeirri meiningu að ef svo verði þá verði byrjað að bora.

Virðulegur forseti. Peningurinn er ekki til staðar. Það er algjörlega óraunhæft að það verði hægt að byrja að bora á næsta ári. Þess vegna stöndum við hér og ræðum þessi mál því að það er ekki (Forseti hringir.) hægt að láta ríkisstjórnarflokkana komast upp með það að kynna hér einhvers konar áætlun, óskalista, og tala um hana sem fullfjármagnaða samgönguáætlun því hún er það svo sannarlega ekki.