samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Þetta er auðvitað málið. Nú hef ég alveg skilning á því að það sé erfitt að koma saman samgönguáætlun og líka að finna fjármagn í þær framkvæmdir. Sú sem hér stendur studdi ríkisstjórn á síðustu tveimur kjörtímabilum sem var að berjast við þetta. Við vorum með fína samgönguáætlun. Við höfðum meira að segja gert ráð fyrir fjármagni í samgönguáætlun. En svo urðu hér bara risastór áföll. Hátt í 500 milljörðum var varið í að bregðast við Covid og eldum á Reykjanesi. Hefði maður viljað nota þá fjármuni frekar í að byggja upp vegi og brýr og göng? Að sjálfsögðu. En svona var forgangsraðað á þeim tíma. Það var þannig að þá ríkti mikil sátt í þessum sal um það. Það var bara almenn pólitísk sátt um að við þyrftum að ráðast í þær framkvæmdir og þá þurfti að taka peningana einhvers staðar frá. Þess vegna erum við í þessari innviðaskuld. Ég tek alveg undir það, það er innviðaskuld. Ég tek undir það sem Samtök iðnaðarins hafa sagt: Við hefðum þurft að hafa meira fjármagn í samgöngumál. En núna erum við ekki að glíma við þessi risastóru áföll. Ég átta mig á því að það eru enn þá stríð í heiminum og ég átta mig á Hormússundi og áhrifum sem það er hafa. En þetta eru ekki áföll sambærileg við Covid eða eldana á Reykjanesi. Þessi ríkisstjórn kemur fram með stórtækar yfirlýsingar um það að ráðast í framkvæmdir en fjármagnið er ekki til staðar í þessari fjármálaáætlun. Það er ekki verið að forgangsraða til samgangna. Þessi ríkisstjórn hefur valið að forgangsraða fjármunum sínum með öðrum hætti þrátt fyrir að hafa farið ítrekað í skattahækkanir með þeim loforðum að þær skattahækkanir ættu að nýtast til uppbyggingar samgöngukerfisins. Þannig að kannski er hægt að segja að hér sé um tvöföld svik að ræða.