samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur andsvarið. Ég er sammála því að höfuðborgarsvæðið hefur vissulega fundið fyrir því að hér hefði þurft að fara miklu hraðar í mikilvægar framkvæmdir því að hér eru umferðarmál óásættanleg. Okkur hefur fjölgað mikið, bílunum á götunum hefur fjölgað mikið, við höfum stækkað mikið en því miður hafa umferðarmannvirkin ekki stækkað í takt við það. Þess vegna var samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins svo mikilvægur þar sem fagaðilar fóru í það að greina umferðina, greina þarfirnar, hvar hnútarnir væru og hvað þyrfti að gera til að leysa þá. Og svarið við því eru fjölbreyttar aðgerðir. Það eru stofnvegaframkvæmdir, sem eru mjög mikilvægar. Það er líka efling almenningssamgangna og virkra samgöngumáta, sem lýtur þá að hjólreiðum og göngustígum og öðru þess háttar, og svo ljósastýring. Allt þetta saman held ég að séu mjög mikilvæg verkefni sem þarf að ráðast í. Þetta mun örugglega ekki leysa allt en það þarf að ráðast í þetta og það þarf að gerast hratt og vel.
Hv. þingmaður kemur hér sérstaklega inn á Sundabrautina, sem skiptir líka gríðarlega miklu máli. Hún er tekin út úr þessum samgöngusáttmála svona að mestu leyti. Það var ákveðin aðkoma sem var hluti af því en fyrst og fremst var horft á það að þetta væri framkvæmd þar sem væri með einhverjum hætti hægt að fara í svokallaða PPP-framkvæmd eða einhvers konar einkafjármögnun að einhverju leyti. Sjálf hefur sú sem hér stendur ítrekað verið með þingmál sem hefur gengið út á það að það eigi bara að leyfa einkaaðilum að fara í að hanna, framkvæma og reka og þar af leiðandi líka rukka fyrir akstur yfir Sundabraut. Það sem við höfum verið að festast í er auðvitað að einhverju leyti bara fjármagn og fólk hefur ekki þorað að stíga alveg skrefið í að fá einkaaðila að borðinu í öllum þessum þáttum. En það hefur líka verið það hvar brautin eða göngin eiga að liggja. Eiga þetta að vera göng eða á þetta að vera braut? Hvers konar göng og þessir þættir. Þess vegna hafði ég svolítið horft til þess: Geta einkaaðilar kannski bara leyst þetta? Þeir sem ætla að framkvæma þetta og eiga þetta og reka þetta væru kannski líka best til þess fallnir að ákveða hvernig þetta á að vera. Stóra málið er auðvitað að við sjáum núna loksins hilla undir það að Sundabrautin geti orðið að veruleika og það er mikilvægt að hún sé hönnuð með þeim hætti að hún létti á Ártúnsbrekkunni þar sem ástandið er orðið óásættanlegt.