samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir fína ræðu. Hún einblíndi svolítið, eðlilega, á ófjármagnaða samgönguáætlun, jarðgangaáætlun sem er að sama skapi ófjármögnuð og síðan þetta innviðafélag sem öllu á greinilega að redda. En hún sagði setningu í sinni ræðu sem var eitthvað á þessa leið: Innviðafélagið fjármagnar ekki samgönguáætlun. Þar gæti ég ekki verið meira sammála þingmanninum. Ég tel jafnvel að hér sé bara orðið um ákveðinn vítahring að ræða hjá þeim sem leggja fram samgönguáætlun, maður áttar sig ekki alveg á því hvert verið er að fara með þessu. Af því að ég veit að þingmaðurinn þekkir talsvert inn á innviðafélagið þá langar mig að velta því aðeins upp og í umræðum í þinginu hef ég velt fyrir mér hvort áherslan sem á að vera á að hraða framkvæmdum — mér finnst einhvern veginn eins og áherslan sé orðin meiri á tekjuöflun. Ef það er rétt mat hjá mér þá fer það ekki vel í almenning sem er endalaust að borga hærri skatta. Kílómetraskatturinn, veiðiskatturinn, kolefnisskatturinn og bara nefndu það. Svo á að fara að koma með veggjöld, tafagjöld og gjöld á alls konar. Deilir þingmaðurinn (Forseti hringir.) þeim áhyggjum með mér að hér sé ofuráhersla á tekjuöflun á meðan ekki er nægjanlega hugað að og rætt nógu mikið um forganginn, sem sagt flýtingu á framkvæmdum?