samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Hún vísar í orð mín um að það að stofna félag, að búa til kennitölu, búa til eitthvert fyrirtæki sem á að heita innviðafélag í rekstri ríkisins, býr ekkert til einhverjar undirstöður fyrir það að hægt sé að ráðast í rándýrar framkvæmdir. Þetta er bara eins og að reka fyrirtæki, þú býrð til einhverja kennitölu og þá áttu allt í einu fullt af pening. Þess vegna hef ég sagt að þetta líti út eins og einhvers konar hókus-pókus ævintýri þessarar ríkisstjórnar. Ég skil samt sem áður alveg hugmyndafræðina á bak við þessi svokölluðu snjóboltaáhrif en þá þarf einhver peningur að koma inn í félagið þegar um er að ræða framkvæmdir eins og til að mynda Fljótagöng. Allir vita að það er ekki arðbær framkvæmd í þeim skilningi að það að taka gjald fyrir aksturinn í gegnum þau göng mun ekki borga þau göng.
Ég hef talað fyrir þessu varðandi Sundabrautina sem er þjóðhagslega mjög mikilvæg og hagkvæm framkvæmd. Flestir sem lagt hafa sig fram við það hafa getað reiknað út að það geti borgað sig að fara í slíka framkvæmd og ég trúi því reyndar að einkaaðilar eða fagfjárfestar gætu komið að því og fengið ágætisávöxtun á fjármagn sitt með því að tekið verði gjald fyrir það að ekið sé yfir Sundabrautina.
Hv. þingmaður spyr hvort áherslan sé orðin of mikil á skattlagningu og ég skil þá spurningu mjög vel. Við erum á svolítið erfiðum stað þegar kemur að þessari umræðu því að ég hef alveg tekið undir veggjöld í einhverjum tilfellum eins og Sundabraut, sem er rosa gott dæmi um það. Mér finnst bara mjög eðlilegt að það sé hægt að rukka fyrir það að keyra yfir Sundabraut. Eftir að þessi ríkisstjórn hefur sett kílómetragjald á alla bíla og hækkað vörugjöld á bifreiðar, þá held ég að það sé búið að slaufa öllum hugmyndum um enn frekari skattlagningu á heimilisbílinn, bara fyrir það að keyra hérna innan svæðis í Reykjavík. (Forseti hringir.) Hugmyndir sem voru einhvern tímann uppi um einhvers konar flýtigjöld eða eitthvað slíkt hljóta að vera foknar út í veður og vind eftir upptöku kílómetragjaldsins og þessa auknu skattlagningu á þá sem eiga bíla.