157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:37]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir svörin. Við erum alveg sammála um það varðandi veggjöld, eða ég geri ráð fyrir því að þingmaðurinn sé þeirrar skoðunar, að veggjöld komi fullkomlega til greina þar sem er hjáleið, þar sem vegfarendur hafa val um að fara einhverja aðra leið eins og var með Hvalfjarðargöngin á sínum tíma. Ég held að við séum alveg sammála um það og líka varðandi flýtigjöldin. Þau hljóta að heyra sögunni til miðað við allar þessar skattahækkanir sem hafa orðið, með kílómetragjaldinu og öðru sem er búið að leggja á.

Mig langar aðeins að halda áfram með innviðafélagið. Ég ætlaði reyndar að fara í almenningssamgöngurnar en mig langar að verja þessum litla tíma sem ég hef í innviðafélagið. Auðvitað erum við öll þeirrar skoðunar, held ég, í þessum þingsal, að við viljum öll að það takist vel til með stofnun þessa innviðafélags, ég held að það sé engin spurning um það, en það er eðlilega tekist á um leiðir. Ég tel að með stofnun innviðafélagsins, til þess að það nái sínum besta tilgangi, sé brýnt að það sé vel ígrundað hvert verkefni félagsins sé, hvernig staðið verði að málum og um leið gætt að hagsmunum almennings. Félag eins og þetta innviðafélag, ef það öðlast sjálfstætt líf, með víðtækum heimildum, eignarhaldi á samgöngumannvirkjum og ekki síst heimild til álagningar gjalda á almenning, þarf að búa við skýran ramma þar sem skyldur við samfélagið verða í forgrunni. Þetta er mín skoðun. Mig langar að spyrja þingmanninn: Telur hún að ramminn í kringum þetta óstofnaða innviðafélag, eins og hann liggur fyrir núna, sé nægilega skýr?