157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:40]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Mig langar að geta þess að í umræðunni varðandi flýtigjöld og annað sem urðu til þegar verið var að vinna fyrst að hugmyndum um samgöngusáttmálann og þær mikilvægu og miklu framkvæmdir sem þarf að fara í á höfuðborgarsvæðinu, þá voru þau nefnd sem ein leið til að fjármagna þær. Ég held að við verðum að leggja þeim hugmyndum í ljósi þess hve skattlagning á akstur hefur aukist. Á þeim tíma var kílómetragjaldið ekki komið á. Þá var fólk að velta fyrir sér: Ókei, það er eðlilegt að þeir borgi sem noti. Í því samhengi er áhugavert að ég lagði fram fyrirspurn til hæstv. innviðaráðherra um hversu hátt hlutfall vega okkar sé í eigu ríkisins og sveitarfélaganna. Það er 50:50. En kílómetragjaldið sem við borgum fyrir að keyra um vegina hérna úti um allt — þar er líklega helmingurinn í eigu sveitarfélaganna sem þurfa þá að halda við þeim vegum þannig að það er ákveðið misræmi í því að allar þessar tekjur renni til ríkisins en ekki til sveitarfélaganna.

Hv. þingmaður er hér að spyrja út í rammann í kringum innviðafélagið og já, ég er sammála hv. þingmanni. Sá rammi sem liggur fyrir núna með lagafrumvarpinu og þá með skilningi meiri hluta nefndarinnar eins og hann birtist í nefndaráliti hans er ekki tækur og gengur ekki fullkomlega upp. Miðað við þær upplýsingar sem ég hef fengið, ég hef nú verið einn af þeim þingmönnum sem hafa fengið kynningarfund frá starfsmönnum í ráðuneytinu sem hafa verið að hugsa þessa hluti, þá er bara einhver villa þarna. Ég veit ekki hvort það er hugsunarvilla eða mistök í nefndaráliti meiri hlutans. Ég veit að málið á að fara inn í nefnd á milli umræðna og ég vona að fólk sé búið að ná einhvern veginn utan um það þannig að það verði alla vega hægt að afgreiða málið með þeim hætti að nefndarálitið sé í rauninni ekki að skemma þá hugmyndafræði sem er á bak við innviðafélagið, sem ég hef alveg trú á að sé góð. Ég hef ekkert á móti því, ég er bara á móti því að ríkisstjórnin stundi þær blekkingar að segja (Forseti hringir.) fólkinu í landinu að hér sé fullfjármögnuð samgönguáætlun af því að þau ætli að gera eitthvað sem heitir innviðafélag. Það er það sem ég er á móti.