samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni kærlega fyrir hans góðu yfirferð hér, enda eru nú líklega fáir þingmenn hér á Alþingi í dag sem þekkja til samgönguáætlunar og samgöngumála eins vel og hv. þingmaður. Ég tek heils hugar undir með honum að það er náttúrlega grátbroslegt að hlusta á þetta; að það er eins og hér hafi hæstv. ríkisstjórn komið eins og frelsari þjóðar og að í fyrsta skipti eigi að fara að leggja malbik eða bora göng. Þessi málflutningur dæmir sig sjálfur.
En nú er tíminn að verða búinn. Mig langar að spyrja hv. þingmann. Hér erum við að ræða töflu í breytingartillögunni, að ef Kjalarnesvegur fari inn í innviðafélagið þá komi 6,3 milljarðar á næstu þremur árum aukalega inn. Mér reiknast til að varðandi þær sjóvarnir sem fara á í, ef þær eru að stærstum hluta í kjördæmi hv. þingmanns, þá séu þetta um 1.100 milljónir sem kæmu inn á næsta ári, bara á næsta ári, í kjördæmi hv. þingmanns. En það miðast við að Kjalarnesvegur (Forseti hringir.) fari inn í innviðafélagið og innviðafélagið hefur sagt að það sé ekkert að fara að gerast núna í haust, kannski ekki einu sinni á næsta ári. Samt þurfum við að ræða hér einhverja töflu um einhverja peninga sem eiga að fara í framkvæmdir sem eiga að koma til framkvæmda strax á næsta ári.